Eins og segir í tilkynningu verða fyrstu viðbrögð stjórnvalda að taka á móti starfsfólki NATO, fyrrverandi nemendum við jafnréttisskóla Sameinuðu þjóðanna á Íslandi sem og að aðstoða þá Afgana sem eiga rétt á fjölskyldusameiningu.
Navid Nouri, afganskur Íslendingur, stóð fyrir samstöðufundi á Austurvelli í gær þar sem þess var krafist að fjölskyldum afganskra Íslendinga verði komið til landsins.
Navid segir ákvörðun stjórnvalda vonbrigði. Aðgerðirnar gangi of skammt. „Þetta voru vonbrigði. Ég veit að aðrir afganskir Íslendingar eru vonsviknir. Er þetta allt sem stjórnvöld geta gert fyrir fjölskyldur þeirra?“ spyr Navid.
Hann segir að ekki sé horft sérstaklega til þeirra sem búa nú við afar skert mannréttindi.
Þá hafi stór hluti þeirra sem til stendur að sækja á grundvelli fjölskyldusameiningar nú þegar átt rétt á að koma til landsins og unnið hafi verið að því áður, segir Navid. Reglurnar um fjölskyldusameiningu séu strangar.
„Ef maður á bróður eða systur sem er eldri en átján, er viðkomandi sem sagt nógu gamall til að deyja? Hvað á það að þýða? Er þetta eins og á einhverju kjúklingabýli? Mér finnst þetta vanhugsað,“ segir Navid og heldur áfram:
„Ef maður lítur til þess sem önnur ríki eru að gera má sjá að þau aðstoðuðu allavega þau sem hafa starfað fyrir afganska herinn. Ríkisstjórnin minntist ekkert á það fólk, konur eða minnihlutahópa. Ég held að Ísland geti gert meira. Þetta dugar ekki til.“
Lokað hefur verið fyrir athugasemdir við fréttina. Fólk er beðið um að halda sig við málefnalega umræðu.