Nýlega var greint var frá því að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hafi skipað Þorstein í stöðuna en hann var áður staðgengill forstjóra Útlendingastofnunar (ÚTL) og hefur lengi stafað hjá stofnuninni.
„Sú ákvörðun að ráða aðila sem gegndi stöðu staðgengils fyrir forstjóra ÚTL í 10 ár sem formann nefndar sem hefur umsjónar- og eftirlitshlutverk gagnvart þeirri sömu stofnun er til þess fallið að draga verulega úr trúverðugleika og hlutleysi nefndarinnar gagnvart ÚTL,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu.
„Með þessu er grafið undan grunnstoðum lýðræðislegs réttarríkis og réttarvitund þegna þess.“
Umboðsmaður Alþingis hvattur til að skoða málið
Meðal þeirra sem skrifa undir yfirlýsinguna eru Félag hernaðarandstæðinga, Félagið Ísland-Palestína, No Borders Iceland, Röskva – samtök félagshyggjufólks við HÍ, Vaka - hagsmunafélag stúdenta, Samtökin '78, Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, og Hallgrímur Helgason rithöfundur.
Skorar hópurinn á dómsmálaráðherra að gera grein fyrir skipun hæfnisnefndar, niðurstöðum hennar og birta öll gögn úr skipunarferlinu, samskipti og ferla. Þá er Umboðsmaður Alþingis hvattur til að fara í frumkvæðisathugun á umræddri skipun með sérstaka áherslu á traustssjónarmið.
Kærunefnd útlendingamála er sjálfstæð stjórnsýslunefnd sem hefur það hlutverk að rannsaka og úrskurða í kærumálum sem falla undir útlendingalög, einkum hvað varðar dvöl og búsetu útlendinga hér á landi og rétt til alþjóðlegrar verndar. Framkvæmd úrskurða nefndarinnar er í höndum Útlendingastofnunar og Ríkislögreglustjóra.
Óttast harða stefnu
Í yfirlýsingunni er Þorsteinn sagður hafa verið forsvari fyrir aðgerðir Útlendingastofnunar gegn fólki á flótta síðasta áratug. Þá er vísað til nýlegra dæma um brottvísun hælisleitenda úr viðkvæmum hópum og ákvörðunar Útlendingastofnunar að fella niður þjónustu flóttamanna sem neituðu að undirgangast Covid-próf. Sú aðgerð var síðar úrskurðuð ólögmæt af kærunefnd útlendingamála.
„Vegna fyrri starfa sinna verður Þorsteinn sjálfkrafa vanhæfur í flestum málum í það minnsta fyrstu 3-4 mánuðina í starfi, ef ekki lengur,“ segir hópurinn og vísar til mála sem Þorsteinn hefur átt aðkomu að í störfum sínum hjá Útlendingastofnun.
Hann hóf þar störf sem lögfræðingur árið 2007 og tók við forstöðu hælissviðs stofnunarinnar árið 2008. Þá var hann sviðsstjóri leyfasviðs frá 2011, ásamt því að vera staðgengill forstjóra. Frá 2016 hefur hann starfað sem sviðsstjóri verndarsviðs og staðgengill forstjóra. Frá október 2019 til 31. mars 2020 var Þorsteinn settur forstjóri Útlendingastofnunar.
Óttast hópurinn að með skipun hans í stöðu formanns nefndarinnar megi búast við að flóttamenn muni „halda áfram að finna fyrir harðri stefnu Þorsteins næstu fimm ár.“
Fréttin hefur verið uppfærð þar sem Vöku vantaði á lista stuðningsaðila sem birtist í upphaflegri fréttatilkynningu frá hópnum.
Aðilar sem skrifa undir yfirlýsinguna
Anna Lára Steindal
Elinóra Guðmundsdóttir
Félag hernaðarandstæðinga
Félagið Ísland-Palestína
Hallgrímur Helgason, rithöfundur
Isold Uggadottir, kvikmyndagerðarkona
Ísland-Kúrdistan félagið
No Borders Iceland
Norðdahl lögmannsstofa
Rauða Regnhlífin Red Umbrella Iceland
Refugees in Iceland
Réttur Barna á Flótta
Röskva - stúdentahreyfing- samtök félagshyggjufólks við Háskóla Íslands
Samtökin '78
Solaris - hjálparsamtök fyrir hælisleitendur og flóttafólk á Íslandi
Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Stelpur Rokka
Tabú, feminísk fötlunarhreyfing
Trans Ísland
Vaka - hagsmunafélag stúdenta
Q - félag hinsegin stúdenta / Q - Queer Student Association