„Þetta er annað hvort fólk sem hefur verið í flóttamannabúðum í Líbanon eða verið á eigin vegum. Flestir hafa búið við slæmar aðstæður og haft litla möguleika á því að vinna eða afla sér menntunar og krakkarnir hafa verið mislengi í skóla miðað við aldur,“ segir Nína Helgadóttir, teymisstjóri á hjálpar- og mannúðarsviði Rauða krossins.
Fjölmenningarsetur og Rauði krossinn á Íslandi taka á móti fjölskyldunum á Keflavíkurflugvelli og fara með þær á farsóttahótel. Þar munu þær dvelja næstu fimm daga áður en þær fara til Reykjavíkur, Hafnafjarðar, Árborgar og Akureyrar.
Sveitarfélögin sjá meðal annars um að veita fólkinu húsnæði en Rauði krossinn útvegar stuðningsaðila og býður upp á ýmsan sálfélagslegan stuðning.

Koma inn í nýtt móttökukerfi
„Þau taka sér fyrstu vikurnar í að koma sér inn í samfélagið, sem tekur alltaf svolítinn tíma. Svo fara krakkar í grunnskóla í sínum hverfum og aðrir í nýtt samfélagsfræðsluprógram á vegum Vinnumálastofnunar og íslenskunám,“ segir Nína.
Um er að ræða fyrstu kvótaflóttamennina sem koma inn í nýtt samræmt móttökukerfi stjórnvalda. Með breytingunni er öllu flóttafólki boðið upp á sambærilega þjónustu hvort sem það kemur hingað í boði stjórnvalda eða á eigin vegum og fá vernd hér á landi.
Nína segir það von allra sem komi að móttöku flóttafólks að nýja kerfið komi til með að bæta og auðvelda ferlið.
„Að þetta verði ekki bara einhver risastór átaksverkefni á einu sinni á ári þegar 50 til 70 manns koma heldur verði þetta eðlilegur hluti af því að sveitarfélögin og Rauði krossinn taki á móti og styðji við flóttafólk sem sest að á Íslandi.“
Von á fleirum á næstu mánuðum
Til viðbótar við hópinn sem kemur í dag og á morgun er von á tveimur sýrlenskum fjölskyldum á næstu vikum sem koma á grundvelli fjölskyldusameiningar. Um er að ræða átta einstaklinga en mál þeirra fóru í bið þegar fjölskyldusamsetning þeirra breyttist eftir að farið var yfir mál þeirra á sínum tíma.
Þá koma 20 Afganar til landsins þann 12. október sem hafa dvalið í Íran og hópur frá Kenía síðar á þessu ári. Átti allur þessi hópur upphaflega að koma í fyrra og við bætist það flóttafólk stjórnvöld hafa boðið til Íslands á yfirstandandi ári.
Nína hvetur Íslendinga til að taka nýbúunum vel og jafnvel bjóða fram aðstoð sína.
„Þetta eru tímabundnar erfiðar aðstæður sem við getum svo vel aðstoðað fólk við að komast í gegnum og ég hvet fólk til að gerast sjálfboðaliðar hjá Rauða krossinum. Það er mjög gefandi verkefni að kynnast fólki annars staðar frá og aðstoða þau við fyrstu skrefin. Okkur vantar líka sjálfboða.“