Skoðun

Lífskjör og velsæld!

Lilja Rafney Magnúsdóttir skrifar

Mikilvægara er nú en nokkru sinni að hlusta á áherslur verkalýðshreyfingarinnar. Vinstri græn hafa lagt mikla áherslu að eiga gott samráð við aðila vinnumarkaðarins allt þetta kjörtímabil og Lífskjarasamningarnir voru gerðir með öflugri aðkomu stjórnvalda sem skilað hefur mörgum þjóðþrifamálum í höfn. Allar þær vinnumarkaðsaðgerðir sem var gripið til sérstaklega vegna Covid voru gerðar að undangengnu samráði við alla þá aðila sem urðu fyrir miklum forsendubresti og atvinnumissi í vegna efnahagsáfalla í kjölfar Covid.

Kjarabarátta þeirra sem lakast standa hefur alltaf verið mér hugleikin enda óx ég upp í verkalýðshreyfingunni á Vestfjörðum. Öflugt samstarf stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins er undirstaða samfélagslegra framfara, raunverulegra kjarabóta og efnahagslegs stöðugleika.

Aðgerðir í húsnæðismálum, þrepaskipt skattkerfi, lágir vextir, lægri kostnaður sjúklinga í heilbrigðiskerfinu, lengra fæðingarorlof, hærri barnabætur og stytting vinnuvikunnar koma ungu fólki og einnig þeim tekjulægri vel. Halda þarf áfram á þessari braut félagslegra umbótamála á komandi kjörtímabili meðal annars með uppbyggingu félagslegs húsnæðis um allt land sem tryggir mannsæmandi og öruggt húsnæði á viðráðanlegum kjörum.

Við viljum vinna áfram gegn fátækt barna með enn öflugra barnabótakerfi sem nær til enn fleiri barnafjölskyldna. Mikilvægt er að skapa öryrkjum fleiri tækifæri til virkari þátttöku í samfélaginu með úrbótum á framfærslukerfi öryrkja. Það er brýnt að endurmeta lágmarks framfærsluviðmið þeirra tekjulægstu í hópi aldraðra og öryrkja og tryggja þeim mannsæmandi afkomu.

Aukin fjárfesting þarf að vera í opinbera heilbrigðiskerfinu sem tryggir gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu um land allt. Hvert heilbrigðisumdæmi þarf að tryggja íbúum greitt aðgengi að læknisþjónustu en þar hafa sum svæði borið skertan hlut frá borði og úr því þarf að bæta.

Mikilvægt er að vinna áfram að því að fjölga hjúkrunarrýmum og efla heimaþjónustu við aldraða og gera breytingu á samspili almannatrygginga og lífeyriskerfinu til að auðvelda sveigjanleg starfslok og gera fólki kleift að vinna lengur.

Aðgengi að geðheilbrigðisþjónustu hefur verið að aukast á vakt VG um land allt og á þeirri braut ætlum við að halda áfram með auknum úrræðum t.d. fyrir ungt fólk og vinna með einmanaleika eldra fólks.

Vinstri græn hafa verið í forystu í heilbrigðismálum á fordæmalausum tímum heimsfaraldurs. Með okkar frábæra heilbrigðisstarfsfólki og því að hlusta á vísindin hefur tekist að byggja upp innviði heilbrigðiskerfisins samhliða því að glíma við Covid faraldurinn þar sem Ísland hefur staðið sig vel með þátttöku allrar þjóðarinnar.

Með hagsmuni samfélagsins alls að leiðarljósi getum við tryggt öllum velsæld. Það er leiðarljós Vinstri grænna.

Höfundur er þingmaður Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Norðvesturkjördæmi.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×