Í fréttum Stöðvar 2 fyrir þremur vikum voru sýndar myndir af komu flugsveitarinnar til Íslands. B-2 sprengjuþoturnar eru taldar einhver skæðustu árásarvopn mannkyns en þeim fylgja um tvöhundruð liðsmenn hersins.

Í frétt norska flughersins sem og þess bandaríska kemur fram að æfingarnar í síðustu viku hafi verið flóknar. Notkun vopnabúnaðar og eyðing loftvarna hafi verið æfð, fylgdaraðferðir verið prófaðar og verkferlar samræmdir.
„Þessi verkefni sýna fram á gildi áframhaldandi viðveru okkar og tengsla,“ segir hershöfðinginn Jeff Harrigian, yfirmaður bandaríska flughersins í Evrópu, í yfirlýsingu.

„Það sem flugmenn okkar ná fram í þessum verkefnum er mikilvægt fyrir bandalag okkar og til að viðhalda hæfni okkar þegar við höldum inn í framtíðina."
Verkefni Bomber Task Force sýni skuldbindingu Bandaríkjanna til sameiginlegra varna NATO og stuðli að stöðugleika í Evrópu. Þessi verkefni sýni að bandarískar hersveitir séu reiðubúnar til að starfa með farsælum hætti í krefjandi öryggisumhverfi á óvissutímum.

Yfirmaður Whiteman-flugherstöðvarinnar í Missouri, þaðan sem B-2 sprengjuþoturnar koma, lýsir einnig ánægju sinni í yfirlýsingu.
„Tækifærið til að þjálfa og sinna verkefnum með bandamönnum okkar og samstarfsaðilum er ómetanlegt,“ segir ofurstinn Matthew Howard.
„Þessi verkefni gera flugmönnum okkar kleift að auka viðbúnað og bregðast við öllum áskorunum um heim allan. Þó að B-2 hafi æft eldsneytistöku i á Keflavíkurflugvelli árið 2019 þá er þetta í fyrsta skipti sem B-2 er gerð út frá Íslandi og fyrir Whiteman flugherstöðina er frábært að taka þátt í þessu sögulega verkefni,“ segir ofurstinn, sem jafnframt er leiðangursstjóri.
„Við erum með mjög öflugt teymi og erum reiðubúnir til að gera út frá Keflavíkurflugvelli og framkvæma verkefni okkar til stuðnings öllum markmiðum evrópsku herstjórnarinnar,“ segir Howard og minnir á að B-2 haldi enn stöðu sinni sem fremsta torséða sprengjuþota heims.

Í fréttatilkynningu bandaríska flughersins fyrir tveimur árum var Keflavíkurherstöðinni lýst sem útstöð fyrir B-2 sprengjuþotuna. Þessi skilgreining er núna ítrekuð og raunar kveðið skýrar að orði. Með því að gera Keflavík að nýrri framvarðarstöð til að hefja sprengjuárásir sé stutt við stefnu varnarmálaráðuneytisins um að viðhalda valdajafnvægi á svæðinu.
Koma sprengjuflugvéla stuðli að árvekni á öllum sviðum, þar sem norðurheimskautið sé stefnumarkandi svæði sem hafi vaxandi geopólitískt og alþjóðlegt mikilvægi. Að vinna þvert á sameiginlegar hersveitir sé þýðingarmikið vegna mikilla vegalengda og margra áskorana á svæðinu.
Hér má sjá myndskeið frá komu B-2 sprengjuflugvélanna til Keflavíkur fyrir þremur vikum:
Hér má sjá myndskeið frá komu fyrstu B-2 til Íslands fyrir tveimur árum: