Ekki gleyma að hafa gaman Ritstjórn Albúmm.is skrifar 13. september 2021 14:31 Fyrir stuttu sendi eðal sveitin Pale Moon frá sér splunku nýtt lag sem heitir Strange days. Þessir Íslensk/Rússnesku sækadelíu krakkar, Árni og Nata, hafa verið að vinna að plötu og hægt og bítandi gefið út lög að henni eitt af öðru. Fyrri útgáfa Parachutes nældi þeim í aukna hlustun og meira að segja sæti á vinsældarlistum íslenskra útvarpsstöðva. Samhliða laginu kom út myndband sem skotið var af hinum Rússneska Dimitry Litvinov. Lagið er kraftmikið, fjörugt og upplífgandi og er alveg tilvalið til að loka sumrinu og fara inn í haustið með bros á vör. Textinn fjallar um þessa skrítnu daga sem við erum að upplifa síðustu misseri og hvernig manni geti liðið sem ókunnugum í slíkum aðstæðum, en einnig að lífið endist ekki að eilífu og beri því að taka ekki of alvarlega, og ekki gleyma að hafa gaman. Lagið er samið og Hljóðritað af Pale Moon (Árni Guðjónsson og Natalia Sushchenko) Hljóðblöndun var framin af Bjarna Þór Jenssyni Tónjöfnun var innt af Bassa Ólafssyni Hljómsveitin kemur svo fram á Mercat de Musica tónlistarhátíðinni í bænum Vic í katalóníu dagana 15- 18 sept. En Mercat de Music er svo til kölluð „bransahátið“ en opin almenningi. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected]. Fylgstu með Pale Moon á palemoonmusic.com Tónlist Mest lesið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Erfitt að njóta kynlífs í líkama sem við höfum lært að hata Lífið Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Lífið Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Lífið Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Lífið Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Lífið Páskaleg og fersk marengsbomba Lífið Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Lífið Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Lífið
Fyrri útgáfa Parachutes nældi þeim í aukna hlustun og meira að segja sæti á vinsældarlistum íslenskra útvarpsstöðva. Samhliða laginu kom út myndband sem skotið var af hinum Rússneska Dimitry Litvinov. Lagið er kraftmikið, fjörugt og upplífgandi og er alveg tilvalið til að loka sumrinu og fara inn í haustið með bros á vör. Textinn fjallar um þessa skrítnu daga sem við erum að upplifa síðustu misseri og hvernig manni geti liðið sem ókunnugum í slíkum aðstæðum, en einnig að lífið endist ekki að eilífu og beri því að taka ekki of alvarlega, og ekki gleyma að hafa gaman. Lagið er samið og Hljóðritað af Pale Moon (Árni Guðjónsson og Natalia Sushchenko) Hljóðblöndun var framin af Bjarna Þór Jenssyni Tónjöfnun var innt af Bassa Ólafssyni Hljómsveitin kemur svo fram á Mercat de Musica tónlistarhátíðinni í bænum Vic í katalóníu dagana 15- 18 sept. En Mercat de Music er svo til kölluð „bransahátið“ en opin almenningi. Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected]. Fylgstu með Pale Moon á palemoonmusic.com
Þessi grein birtist fyrst á Albumm.is. Albumm var stofnaður árið 2014 og fjallar um íslenska tónlist og menningu frá öllum hliðum. Hægt er að hafa samband í [email protected].
Tónlist Mest lesið Einn huggulegasti leikari landsins á lausu Lífið Uppfyllti hinstu ósk ömmu sinnar Lífið Erfitt að njóta kynlífs í líkama sem við höfum lært að hata Lífið Ítalskur heilafúi dreifir sér um heimsbyggðina Lífið Greiddi niður 16 milljón króna skuldir á tæpu ári Lífið Alls ekki öll von úti fyrir Væb-bræður Lífið Geimferðin gagnrýnd: „Mér býður við þessu“ Lífið Páskaleg og fersk marengsbomba Lífið Unnur Eggerts afhjúpar nafn dótturinnar Lífið Sexfaldur Íslandsmeistari fékk ráð frá rándýru teymi og fór heim með eina milljón Lífið