Í frétt AP fréttaveitunnar segir að Pfizer muni sækja um markaðsleyfi fyrir aldurshópinn hjá matvæla- og lyfjaeftirliti Bandaríkjanna innan skamms. Fyrirtækið muni síðan sækja um leyfi hjá evrópskum yfirvöldum.
Þá segir einnig að fyrirtækið hafi í rannsókninni gefið börnum einungis einn þriðja af þeim skammti bóluefnis sem tólf ára og eldri fá. Samt sem áður veiti bólusetningin sama mótefnasvar í börnum og þeim sem fái fullan skammt.
Börnin fá vægari aukaverkanir
AP hefur eftir Bill Gruber, yfirmanni hjá Pfizer, að barnaskammturinn sé öruggur og að börnin upplifi vægari aukaverkanir en fullorðnir.
Margir foreldrar í Bandaríkjunum hafi beðið bólusetninga barna þar sem Delta-afbrigði kórónuveirunnar og upphaf skólaársins hafi valdið mikilli aukningu í fjölda smitaðra barna undir tólf ára aldri í Bandaríkjunum.
Kúba bólusetur börn allt niður í tveggja ára
Flest ríki heims hafa hingað til ekki hafið bólusetningar barna undir tólf ára, þar á meðal Ísland.
Hins vegar hófu heilbrigðisyfirvöld á Kúbu að bólusetja börn allt niður í tveggja ára gömul með bóluefni sem þróað var í landinu í síðustu viku. Þá hafa kínversk yfirvöld veitt tveimur þarlendum bóluefnaframleiðendum leyfi til bólusetningar þriggja ára barna.