Farþegi um borð í flugvélinni, segir í samtali við Vísi að sex flug hafi verið á áætlun Icelandair frá Akureyri til Reykjavíkur í dag en að þeim hafi verið fækkað í fjögur. Þá hafi farþegum tveggja áætlaðra flugferða með minni flugvélum verið flogið með einni stærri Boeing 737 MAX flugvél.
Hann telur að minni flugvél hefði hæglega getað lent á Reykjavíkurflugvelli og því finnist honum ákvörðunin sérkennileg.
Hann segir að sér og öðrum farþegum hafi verið nokkuð brugðið þegar hreyflar vélarinnar voru settir í botn og tekið var á loft aftur.
Upptöku af því má sjá hér að neðan.
Biðu í einn og hálfan klukkutíma á flugbrautinni
Farþeginn segir að við komuna til Keflavíkurflugvallar hafi löng bið beðið þar sem erfitt hafi reynst að taka á móti innanlandsflugi. Farþegum hafi ekki verið hleypt frá borði fyrr en minnst einni og hálfri klukkustund eftir lendingu.
Þá hafi tekið við glundroði í flugstöðinni þar sem sumir farþegar hafi viljað fá farangur sinn afhentan þar til að ná tengiflugi. Hann segist hafa skynjað nokkurn pirring meðal farþega vélarinnar.
Sjálfur segist hann sáttur með að vera kominn heim en að honum finnist samt sem áður skrýtið að Icelandair hafi ákveðið að nota Boeing 737 MAX í flugið.
Hér að neðan má sjá hvernig stefnu flugvélarinnar var breytt.
