„Ég er hrikalega stoltur af liðinu. Þetta var gríðarlega erfitt í dag. Fram spilaði mjög vel og setti okkur undir mikla pressu. Það þurfti mikinn karakter til að snúa slakri byrjun við,“ sagði Snorri Steinn Guðjónsson þjálfari Vals.
Fram byrjaði leikinn frábærlega og gerði sex fyrstu mörk leiksins.
„Mér fannst við flatir og máttlausir í byrjun leiks. Lárus Helgi var að verja vel á þessum kafla. Fram refsaði okkur líka fyrir léleg skot. Svona vill maður ekki byrja bikarúrslitaleik og var ég mjög sáttur með að leikurinn var jafn í hálfleik.“
Valur hefur verið í svakalegu leikjaálagi frá því tímabilið hófst. Frá 31. ágúst hefur Valur spilað tíu leiki í fjórum mismunandi keppnum.
„Þetta hefur fyrst og fremst verið mjög skemmtilegt. Þetta var níundi allt eða ekkert leikurinn okkar. Í upphafi tímabils litum við á þetta sem forréttindi að spila fullt af úrslitaleikjum, það eru eflaust einhver lið sem spila ekki svona marga úrslitaleiki á heilu tímabili.“
Eftir að hafa leikið marga úrslitaleiki á stuttum tíma verður verk fyrir Snorra Stein að koma sínum mönnum upp á tærnar þegar Olís deildin tekur við.
„Við sjáum bara til hvort það verði erfitt að koma mönnum upp á tærnar fyrir deildina. Ég ætla fá að njóta þess að vera bikarmeistari núna um helgina, ég vona að liðið geri það líka, þeir eiga það skilið,“ sagði Snorri Steinn að lokum.