Ráku Koeman í flugvélinni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 28. október 2021 11:31 Ronald Koeman stýrði Barcelona í síðasta sinn í gær. getty/Diego Souto Forráðamenn Barcelona voru ekkert að tvínóna við hlutina eftir tapið fyrir Rayo Vallecano í spænsku úrvalsdeildinni í gær og ráku Ronald Koeman í flugvélinni á leiðinni frá Madríd til Barcelona.
Barcelona tapaði 1-0 fyrir Rayo Vallecano í gær. Það var kornið sem fyllti mælinn hjá forráðamönnum Barcelona sem ákváðu að segja Koeman upp störfum. Tíðindin komu eflaust fáum á óvart enda sat Hollendingurinn í afar heitu sæti eftir slaka byrjun Börsunga á tímabilinu. Barcelona er í 9. sæti spænsku úrvalsdeildarinnar og hefur ekki byrjað tímabil jafn illa í 34 ár. Samkvæmt fréttum spænskra fjölmiðla var Joan Laporta, forseti Barcelona, mjög reiður eftir tapið í gær. Eftir að hafa ráðfært sig við aðra stjórnarmenn og meðlimi í starfsliði Barcelona ákvað hann að taka í gikkinn og reka Koeman. Hann fékk tíðindin meðan flugvél Börsunga var í loftinu á leið heim frá Madríd. Seint í gærkvöldi sendi Barcelona svo frá sér tilkynningu að Koeman hefði verið leystur frá störfum hjá félaginu. Hann stýrði Barcelona aðeins í fjórtán mánuði. Brokkreksturinn var ekki ódýr fyrir Barcelona en talið er að Koeman fái tíu milljónir punda frá félaginu vegna starfslokanna. Börsungar eiga í miklum fjárhagskröggum og munar um hverja krónu. Xavi er talinn líklegastur til að taka við Barcelona. Hann er goðsögn hjá félaginu og var um tíma fyrirliði Barcelona.
Spænski boltinn Mest lesið Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Íslenski boltinn „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Íslenski boltinn „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ Fótbolti Dagskráin í dag: Íslenskt góðgæti með erlendu kryddi Sport Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Íslenski boltinn Saka ekki alvarlega meiddur Enski boltinn Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Fleiri fréttir Segir að Alexander-Arnold eigi ekki að byrja fleiri leiki ef hann er á förum Vandræði KR við nýja völlinn: „Hér var bara mýri og ruslahaugur“ Liverpool gæti orðið meistari strax á miðvikudag Saka ekki alvarlega meiddur „Vonast til að vera sendiherra fyrir alla leikmenn Palestínu“ „Hagsmunum félagsins best borgið með sölu á leikmanninum“ Ástbjörn missir af næstu leikjum KR Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum Sjá meira