Stjóri Atalanta sagði Ronaldo að fara til helvítis Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 3. nóvember 2021 15:01 Cristiano Ronaldo og Gian Piero Gasperini göntuðust eftir leik Atalanta og Manchester United í Meistaradeild Evrópu. epa/PAOLO MAGNI Eftir leik Atalanta og Manchester United í Meistaradeild Evrópu í gær sagði Gian Piero Gasperini, knattspyrnustjóri ítalska liðsins, Cristiano Ronaldo, hetju Rauðu djöflana, að fara til helvítis, í léttum dúr þó. Ronaldo sá til þess að United fór með eitt stig frá Ítalíu þegar hann jafnaði í 2-2 á annarri mínútu í uppbótartíma. Ronaldo skoraði einnig fyrra mark United undir lok fyrri hálfleiks. Hann jafnaði þá í 1-1. Ronaldo hefur reynst United ómetanlegur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Hann skoraði sigurmarkið gegn Villarreal, 2-1, í uppbótartíma og sigurmarkið í fyrri leiknum gegn Atalanta sem United vann, 3-2. Það er því ekki að furða að Gasperini sé orðinn pirraður á Ronaldo því án markanna hans væri Atalanta í kjörstöðu í F-riðli. Gasperini sló þó á létta strengi með Ronaldo þegar þeir ræddust við í leikslok. „Eftir leikinn sagði ég við hann: Þú veist hvað við segjum á Ítalíu, farðu til helvítis,“ sagði Gasperini sem sagði jöfnunarmark Ronaldos hafa verið laglegt. „Hann er bara ótrúlegur. Ef það er einhver sem þú vilt að fái þetta færi, og það var erfitt, er það hann. Augun voru allan tímann á boltanum og tæknin sem hann sýndi þegar hann tók hann á lofti var ótrúleg.“ United er á toppi F-riðils Meistaradeildarinnar með sjö stig, líkt og Villarreal. Atalanta er í 3. sæti riðilsins með fimm stig. Ronaldo hefur skorað í öllum fjórum leikjum United í Meistaradeildinni, alls fimm mörk. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði. Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Sjá meira
Ronaldo sá til þess að United fór með eitt stig frá Ítalíu þegar hann jafnaði í 2-2 á annarri mínútu í uppbótartíma. Ronaldo skoraði einnig fyrra mark United undir lok fyrri hálfleiks. Hann jafnaði þá í 1-1. Ronaldo hefur reynst United ómetanlegur í riðlakeppni Meistaradeildarinnar. Hann skoraði sigurmarkið gegn Villarreal, 2-1, í uppbótartíma og sigurmarkið í fyrri leiknum gegn Atalanta sem United vann, 3-2. Það er því ekki að furða að Gasperini sé orðinn pirraður á Ronaldo því án markanna hans væri Atalanta í kjörstöðu í F-riðli. Gasperini sló þó á létta strengi með Ronaldo þegar þeir ræddust við í leikslok. „Eftir leikinn sagði ég við hann: Þú veist hvað við segjum á Ítalíu, farðu til helvítis,“ sagði Gasperini sem sagði jöfnunarmark Ronaldos hafa verið laglegt. „Hann er bara ótrúlegur. Ef það er einhver sem þú vilt að fái þetta færi, og það var erfitt, er það hann. Augun voru allan tímann á boltanum og tæknin sem hann sýndi þegar hann tók hann á lofti var ótrúleg.“ United er á toppi F-riðils Meistaradeildarinnar með sjö stig, líkt og Villarreal. Atalanta er í 3. sæti riðilsins með fimm stig. Ronaldo hefur skorað í öllum fjórum leikjum United í Meistaradeildinni, alls fimm mörk. Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Meistaradeild Evrópu er á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Meistaradeildin er hluti af Stöð 2 Sport erlent sem kostar 3.990 krónur á mánuði.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt Fótbolti Fleiri fréttir Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Sjá meira