Þetta kemur fram í tilkynningu frá Isavia, en tilboð Húsheildar hljóðar upp á tæpar 865 milljónir króna en tilboð Hyrnu upp á rúmar 810 milljónir króna.
Verkefnið felur í sér viðbyggingu við núverandi flugstöð og breytingu á núverandi húsnæði flugstöðvarinnar og nánasta umhverfi. Fyrsta skóflustunga að viðbyggingunni var tekin í júní síðastliðnum.

Ákveðið var að bjóða verkið út á ný í september eftir að ákveðið var að hafna eina tilboðinu sem barst. Húsheild var þá eini aðilinn sem bauð í verkið og hljóðaði tilboðið þá upp á 910 milljónir króna. Var það sagt mun hærra en kostnaðaráætlun gerði ráð fyrir.
Í tilkynningunni frá Isavia er haft eftir Sigrúnu Björk Jakobsdóttur, framkvæmdastjóra Isavia Innanlandsflugvalla, að nú verði farið ítarlega yfir þau tvö tilboð sem bárust.
„Verkefnið sem hér um ræðir er 1.100 fermetra viðbygging við flugstöðina með góðri aðstöðu fyrir toll og lögreglu, fríhöfn og veitingastað. Áætlað er að heildarverkefninu verið lokið síðsumars 2023,“ segir Sigrún Björk.
