Sala á neyðarkallinum er ein af mikilvægustu fjáröflunum björgunarsveitanna. „Þessi fjármunir renna beint inn í rekstur björgunarsveitanna og auðvitað bara standa straum af kostnaði við hérna bara eldsneyti og menntun og fleira sem við þurfum að gera í okkar starfi,“ segir Otti Rafn Sigmarsson formaður Landsbjargar.
Í ár er neyðarkallinn sjóbjörgunarmann. Þrettán björgunarskip eru staðsett hringinn í kringum landið. Eitt þeirra var notað til að æfa sjóbjörgun í dag ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar.
Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tók þátt í æfingunni en hann var hífður af þilfari skipsins upp í þyrlu Landhelgisgæslunnar.
„Þetta var spennandi og fumlaus handtök hvers og eins í þyrlunni og auðvitað hér líka þegar ég var hífður upp og einn eitt sannindamerki þess að hérna er fólk sem kann til verka,“ sagði Guðni þegar æfingunni var lokið.

„Fyrst og fremst fyllist maður bara öryggiskennd að vita af því að ef eitthvað bjátar á þá eigum við fólk að sem kann til verka og kastar öllu frá sér og hjálpar þeim sem eru hjálparþurfi,“ segir Guðni.
Þetta er í sextánda sinn sem neyðarkallinn er seldur og hafa þeir verið fjölbreyttir í gengum tíðina. Svo virðist sem að þeir séu orðnir safngripir en margir eiga þá alla. Þá hringir stundum fólk á skrifstofu Landsbjargar til að leita að neyðarköllum sem það vantar.
„Oft er verið að leita að gömlu köllunum. Vantar kannski einn inn í safnið eða eitthvað slíkt en já þetta er orðið svona hjá mörgum smá hefð að safna,“ segir Otti.
