Eiður Smári lætur af störfum sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 23. nóvember 2021 23:42 Arnar Þór Viðarsson, landsliðsþjálfai Íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, og Eiður Smári Guðjohnsen, aðstoðarþjálfari hans. Eiður lætur af störfum í næstu viku. Vísir/Jónína Guðbjörg Eiður Smári Guðjohnsen og stjórn KSÍ hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem aðstoðarþjálfari A-landsliðs karla.
Frá þessu er greint á heimasíðu KSÍ, en samkomulagið snýr að því að virkjað hefur verið endurskoðunarákvæði í samningi Eiðs og mun hann láta af störfum þann 1. desember næstkomandi. Eiður hefur verið í þjálfarateymi A-landsliðs karla frá desember 2020, en hann lék á sínum tíma 88 leiki fyrir liðið og skoraði í þeim 26 mörk. Stjórn KSÍ og Eiður Smári Guðjohnsen hafa komist að samkomulagi um starfslok hans sem aðstoðarþjálfari A landsliðs karla. https://t.co/ck2BCSrEe1— Knattspyrnusambandið (@footballiceland) November 23, 2021 „Samkomulag um starfslok mín voru tekin með hagsmuni mína, landsliðsins og KSÍ að leiðarljósi. Ég vil þakka öllum innan sambandsins fyrir frábært samstarf undanfarið ár. Síðasta ár hefur verið mjög krefjandi bæði innan vallar sem og utan bæði fyrir mig persónulega sem og sambandið. Áfram Ísland!“ segir Eiður Smári á vef KSÍ. Eiður fékk skriflega áminningu frá KSÍ og var sendur í tímabundið leyfi í sumar, eftir að myndband af honum fór í dreifingu á samfélagsmiðlum þar sem hann sást kasta af sér vatni að næturlagi í miðborg Reykjavíkur. Frá því að Arnar Þór Viðarsson hóf að þjálfa fyrir KSÍ hefur Eiður verið hans aðstoðarþjálfari. Þeir tóku við U21-landsliði karla í ársbyrjun 2019, liði sem þeir komu í lokakeppni EM 2021. Arnar og Eiður tóku svo við A-landsliðinu í lok síðasta árs og stýrðu því í nýafstaðinni undankeppni HM. Ísland endaði í næstneðsta sæti J-riðils með níu stig í tíu leikjum.
Fótbolti KSÍ Mest lesið Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Enski boltinn Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Piastri sigraði í Jeddah og leiðir keppni ökumanna Formúla 1 Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn Fleiri fréttir Slot sáttur fyrir hönd Trent Alexander-Arnold Bologna gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Inter Valverde bjargaði vondri viku Evrópumeistararnir fóru hamförum Daníel Leó með mikilvægt sigurmark á meðan Kolbeinn skoraði í tapi „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Trent tryggði sigurinn gegn lánlausu liði Leicester Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjá meira