Í annað sinn á innan við ári sem landsliðsþjálfari hættir vegna áfengisneyslu Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 24. nóvember 2021 10:30 Eiður Smári Guðjohnsen og Jón Þór Hauksson þurftu báðir að hætta hjá KSÍ vegna áfengisneyslu í landsliðsferð. vísir/jónína/vilhelm Eiður Smári Guðjohnsen er hættur sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins í fótbolta. Hann er annar þjálfari A-landsliðs í fótbolta sem fær að taka pokann sinn á einu ári vegna áfengisneyslu í landsliðsferð.
Klukkan 23:30 í gær sendi KSÍ frá sér tilkynningu þess efnis að Eiður Smári myndi hætta sem aðstoðarþjálfari karlalandsliðsins um mánaðarmótin. Uppsagnarákvæði í samningi hans var nýtt. Haft var eftir Eiði að síðasta ár hefði verið mjög krefjandi innan sem utan vallar, bæði fyrir hann og KSÍ. Eiður Smári var á gulu spjaldi eftir að hafa fengið áminningu frá KSÍ í sumar eftir að myndband af honum í annarlegu ástandi í miðbæ Reykjavíkur fór í dreifingu. Hann fékk svo rauða spjaldið eftir að áfengisneyslu eftir síðasta leik Íslands í undankeppni HM 2022, gegn Norður-Makedóníu í Skopje. DV greindi frá. Þetta er í annað sinn á innan við ári sem þjálfara A-landsliðs Íslands í fótbolta er sagt upp vegna áfengisneyslu í landsliðsferð. Í desember á síðasta ári hætti Jón Þór Hauksson sem þjálfari kvennalandsliðsins eftir að verið undir áhrifum áfengis þegar liðið fagnaði sæti á EM. Jón Þór viðurkenndi að hafa farið yfir strikið í samræðum sínum við leikmenn landsliðsins og sagðist hafa brugðist sem landsliðsþjálfari. Síðasta ár hefur verið gríðarlega erfitt fyrir KSÍ. Skemmst er að minnast atburða haustsins þegar formaður og stjórn sambandsins sögðu af sér vegna ásakana um að hafa hylmt yfir meint kynferðis- og ofbeldisbrot leikmanna karlalandsliðsins.
KSÍ Mest lesið Sturluð staðreynd um afrek Eyglóar Sport Úlfarnir unnu United aftur Enski boltinn Segir Akureyri á hjara veraldar og varð hugfanginn í Sjallanum Sport Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Enski boltinn Kallaði sig hálfvita eftir áreksturinn Formúla 1 Í beinni: Leicester - Liverpool | Geta farið langt með að tryggja sér titilinn Enski boltinn Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Enski boltinn Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Enski boltinn ÍA og Vestri mætast inni Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Formúla 1 og NBA á Páskasunnudegi Sport Fleiri fréttir „Vinnur ekki leiki ef þú skorar ekki“ ÍA og Vestri mætast inni Í beinni: Leicester - Liverpool | Geta farið langt með að tryggja sér titilinn Hákon nær Meistaradeildinni en Mikael áfram í fallsæti Úlfarnir unnu United aftur Frestuðu fögnuði Liverpool með sýningu Neto hetja Chelsea á síðustu stundu Grýtti spjaldtölvu í jörðina þegar víti var ekki dæmt María lagði upp og fyrsta stigið komið í hús Losað um hlekki Jóns Dags sem lagði upp eftir tuttugu sekúndur Stefán Gísli fékk fimm ára samning hjá Val Ancelotti segir engin illindi milli sín og forsetans Krakkarnir sem gætu fengið sénsinn hjá Amorim Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Sjá meira