Eyþór Gunnarsson var á hljómborðinu og með þeim á sviðinu voru börnin þeirra Sigríður Eyþórsdóttir, Elísabet Eyþórsdóttir, Elín Eyþórsdóttir og Eyþór Ingi Eyþórsson.
Tónleikarnir voru fluttir á Bylgjunni og sýndir samhliða því á sjónvarpsstöðinni Stöð 2 Vísir.
Alls verða sjö tónleikar í tónleikaröðinni Bylgjan órafmögnuð. Í næstu viku koma fram söngkonurnar Stefanía Svavars og Elísabet Ormslev. Tónleikaröðinni verður svo lokað með jólaþætti 9. desember þar sem fram koma Sverrir Bergmann, Sigga Beinteins og leynigestur. Fyrstu fjóra tónleikana má sjá HÉR á Vísi.
Tónleikarnir eru teknir upp á Barion Bryggjan og eru sannkallað gull í eyru og augnakonfekt.