Stjórnvöld í Bretlandi voru fyrst að ríða á vaðið og banna flug frá Suður-Afríku, þar sem að minnsta kosti 77 tilfelli hafa verið staðfest.
SARS-CoV-2 er kórónuveiran sem veldur Covid-19 en menn óttast að nýja afbrigðið, B.1.1.529, sé bæði smitnæmara og mögulega líklegra til að komast hjá ónæmisvörnum líkamans.
Hlutabréfamarkaðir og olíuverð hafa lækkað í morgun í kjölfar fregna af hinu nýja, mikið stökkbreyttu afbrigði SARS-CoV-2.
Lækkunin nam 3,3 prósentum í Lundúnum og 2,5 prósentum í Tókýó.
Enn sem komið er hefur afbrigðið aðeins verið greint í Suður-Afríku, Botswana, Ísrael og Hong Kong. Þar var um að ræða ferðamann sem var að koma frá Suður-Afríku og sá sem greindist í Ísrael var að koma frá Malawi.
Tvö önnur möguleg tilvik eru til skoðunar í Ísrael en umræddir einstaklingar þar í landi eru allir bólusettir.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin hefur boðað til fundar í dag til að leggja mat á þau gögn sem liggja fyrir um B.1.1.529 og ákvarða hvort það verður flokkað sem afbrigði til að fylgjast með eða afbrigði til að hafa áhyggjur af.
Japan, Indland og Ítalía hyggjst grípa til sérstakra aðgerða á landamærum sínum vegna afbrigðisins en utanríkisráðherra Suður-Afríku segir ótímabært að banna flug frá landinu, þar sem WHO hafi ekki enn tekið afstöðu til þess.
Sérfræðingar á Bretlandseyjum hafa sagt í fjölmiðlum að bóluefnin sem nú er verið að nota gegn Covid-19 muni nær örugglega reynast minna virk gegn nýja afbrigðinu en að hægt yrði að breyta þeim til að verja gegn því.
Þá segja þeir ekki ástæðu til að örvænta og benda á að nú séu ný lyf að koma fram gegn sjúkdómnum.
Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur hvatt menn til að stíga varlega til jarðar í ályktunum um áhrif nýja afbrigðisins og Mike Tildesley, einn ráðgjafa breskra stjórnvalda, tekur í sama streng.
Of snemmt sé að spegúlera um áhrif bóluefna á nýja afbrigðið og þá sé rétt að hafa í huga að möguleg hröð dreifing í Suður-Afríku ætti ekki að koma á óvart þar sem aðeins 24 prósent þjóðarinnar væru bólusett.