Austurfrétt greindi fyrst frá.
Friðrik Smári Björgvinsson, saksóknari hjá héraðssaksóknara, segir í skriflegu svari við fyrirspurn fréttastofu að samkvæmt lögreglulögum skuli héraðssaksóknari rannsaka atvik þegar maður lætur lífið, hann verði fyrir stórfelldu líkamstjóni eða lífi manns er hætta búin í tengslum við störf lögreglu, óháð því hvort grunur sé um refsivert brot.
Við slíkar rannsóknir hafi lögreglumönnum verið gefin réttarstaða sakborninga. Svo hafi verið gert við tvo lögreglumenn við rannsókn þessa máls.
„Ekkert kom fram við rannsóknina sem benti til að um hafi verið að ræða refsiverða háttsemi af hálfu lögreglu og því hefur sá hluti málsins verið látinn niður falla með vísan til 145. gr. laga um meðferð sakamála nr. 88/2008. Lögreglumönnunum var tilkynnt um ákvörðunina í síðustu viku,“ segir Friðrik Smári.
Ætlaði að eiga samskipti við barnsföður kærustu
Það var á tíunda tímanum að kvöldi 26. ágúst sem Lögreglunni á Austurlandi barst tilkynning um vopnaðan mann sem hafði uppi hótanir um að beita vopni.
Þar var á ferðinni karlmaður á fimmtugsaldri sem ætlaði að eiga samskipti við barnsföður kærustu sinnar sem býr í götunni. Mætti hann þangað vopnaður Beretta A87 Target skammbyssu. Skothvellir heyrðust úr húsinu og var maðurinn síðar skotinn í kviðinn af lögreglu.
Voru viðbrögð lögreglu til rannsóknar hjá héraðssaksóknara sem hefur nú hætt þeirri rannsókn.
Kröfur um milljónir í bætur
Byssumaðurinn sætir ákæru fyrir tilraun til manndráps, húsbrot, eignaspjöll, vopnalagabrot og brot í nánu sambandi. Þá hefur réttargæslumaður brotaþola lagt fram einkaréttarkröfur fyrir þeirra hönd. Það er fyrir hönd sambýliskonu mannsins, barnsföður hennar og tveggja sona þeirra.
Barnsfaðirinn gerir þá kröfu að maðurinn greiði honum rúmar 2,9 milljónir króna í miskabætur. Gerð er krafa fyrir hönd unglingsdrengjanna tveggja að byssumaðurinn greiði þeim 2,5 milljónir króna hvorum í miskabætur.
Þá gerir móðir drengjanna, sambýliskona byssumannsins, kröfu um að hann greiði sér 1,5 milljón króna í miskabætur.