Skoðun

Skýjalausnir lykillinn að upplýsingakerfum framtíðarinnar

Rúnar Sigurðsson skrifar

Eldri upplýsingakerfi voru gjarnan með ýmis stoðkerfi inni í sjálfum grunnkerfunum. Það gerði þau óþarflega flókin og erfið í uppfærslu þegar nýjar útgáfur komu fram. Oft á tíðum voru uppfærslur það flóknar að nánast þurfti að setja kerfin upp frá grunni með viðeigandi kostnaði og einnig setja upp uppfærslur hjá hverju fyrirtæki fyrir sig með ærnum kostnaði. Mörg fyrirtækin kusu því að uppfæra ekki á kostnað öryggis og hagræðingar með nýjum og öflugri upplýsingakerfum.

Skýjalausnir – hver er ávinningurinn?

Nútíma skýjalausnir er mikil hagræðing frá eldri lausnum þar sem þurfti að huga að rekstri netþjóna með öllum þeim kostnaði og óöryggi sem því fylgdi. Hver man ekki eftir eldri útgáfum af Excel og Word. Þá var eilíft vandamál að allir væru búnir að uppfæra til að geta sent gögn frá einum aðila til annars til að geta nýtt sér nýjustu útgáfur. Nú er þetta allt löngu leyst og engin spyr lengur um hvaða útgáfu af Excel þú ert með. Eftir tilkomu Office365 frá Microsoft er greitt eitt mánaðargjald - allir eru í nýjustu útgáfunni og engin hefur áhyggjur af rekstri netþjóna. Ekki má samt gleyma öryggis- og afritunarmálum þessu samfara, það þarf enn að huga að þeim.

Nútíma upplýsingakerfi eru í skýjalausnum

Í nútíma upplýsingakerfum gerum við kröfur um að allir séu í sömu útgáfu, uppfærslur og lagfæringar séu meira og minna sjálfvirkar og kosti ekkert aukalega. Nýjar útgáfur og lagfæringar koma reglulega og allir fylgja eftir þróuninni á lausninni. Það eru gríðarlega miklar breytingar að eiga sér stað í nútíma upplýsingakerfum. Einn af stóru kostunum er sá að allir njóta góðs af þróuninni og fá nýjustu uppfærslur án auka kostnaðar en þær koma reglulega eftir því sem tækninni fleygir fram.

Besta lausnin val fyrir verkefnið sem á að leysa

Ein af breytingunum sem er að eiga sér stað samhliða skýjalausnavæðingunni er að nú er auðvelt að samþátta lausnir við grunnupplýsingakerfið. Í dag eru svokölluð forritaskil að ryðja sér til rúms. Forritaskil eða API samþætting (Application Program Interface) auðveldar samþættingu á lausnum sem henta í mismunandi umhverfi. Nú geta fyrirtækin valið sér, t.d. verk/tímaskráningu sem hentar, vefverslun sem hentar og fleiri lausnir mætti nefna. Ef lausnirnar hafa API forritaskil er auðvelt að tengja þau við grunnnupplýsingakerfið og þannig ná fram hagræðingu. Höfum alltaf í huga að við viljum tengja ólík kerfi saman og það mega ekki vera nein göt á milli kerfanna, upplýsingar fara á milli sjálfvirkt með samþáttunum. Engin óþarfa handavinna, pappír eða möppur.

Höfundur er framkvæmdastjóri Svars ehf.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×