Körfuboltaárið 2022 hefst því með hörkuleik í Mathús Garðabæjar höllinni og þar kemur í ljós hvort gestirnir úr Njarðvík séu lentir eftir montsigur á Keflavík rétt fyrir áramótin.
Leikurinn á milli Stjörnunnar og Njarðvíkur verður sýndur beint á Stöð 2 Sport og hefst útsendingin frá Ljónagryfjunni klukkan 19.00.
Stjörnumenn hafa haldið í þá góðu hefð að byrja síðustu ár með sigri en Garðbæingar hafa unnið fyrsta deildarleik ársins undanfarin sex ár eða frá og með janúar 2016.
Síðasta liðið til að vinna Stjörnunnar í fyrsta leik ársins voru Tindastólsmenn í janúar 2015. Tindastóll vann þá 91-82 sigur á Stjörnunni á Sauðárkróki.
Stjarnan hefur unnið fyrsta leik ársins með sannfærandi hætti undanfarin ár þar af með samtals 97 stigum undanfarin fjögur ár.
Það reynir hins vegar á Garðbæingana í kvöld á móti öflugu Njarðvíkurliði sem hefur unnið fjóra síðustu leiki sína þar á meðal sigur á nágrönnum sínum í Keflavík á útivelli milli jóla og nýárs. Stjarnan hefur unnið tvo síðustu leiki sína og þrjá af síðustu fjórum.
Njarðvíkingar hafa aðeins unnið tvo af sex opnunarleikjum sínum á árinu á sama tíma og Stjarnan hefur unnið alla sex sína leiki.
Garðbæingar halda í aðra hefð. Stjarnan hefur nefnilega verið gott tak á Njarðvík og er búið að vinna fimm síðustu deildarleiki liðanna eða alla leiki síðan Njarðvík vann tvíframlengdan leik liðanna í nóvember 2018.
- Fyrsti deildarleikur Stjörnunnar á árinu
- 2021: 27 stiga sigur á Hetti (97-70)
- 2020: 14 stiga sigur á Þór Þorlákshöfn (84-70)
- 2019: 23 stiga sigur á ÍR (106-83)
- 2018: 33 stiga sigur á Hetti (102-69)
- 2017: 15 stiga sigur á Þór Ak. (92-77)
- 2016: 1 stigs sigur á KR (74-73)
- 2015: 9 stiga tap fyrir Tindastól (82-91)
- -
- Síðustu innbyrðis leikir Stjörnunnar og Njarðvíkur í deildinni:
- 2020-21
- Stjarnan vann 12 stiga sigur í Garðabæ (82-70)
- Stjarnan vann 8 stiga sigur í Njarðvík (96-88)
- 2019-20
- Stjarnan vann 5 stiga sigur í Garðabæ (89-84)
- Stjarnan vann 2 stiga sigur í Njarðvík (78-76)
- 2018-19
- Stjarnan vann 6 stiga sigur í Garðabæ (82-76)
- Njarðvík vann 4 stiga sigur í Njarðvík eftir tvær framlengingar (99-95)

Subway-deildirnar í körfubolta eru á Stöð 2 Sport en upplýsingar um útsendingar má finna hér. Subway-deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 3.990 krónur á mánuði.