Málið sem tekið verður fyrir af héraðsdómi er mál Ingólfs, betur þekktur sem Ingó Veðurguð, gegn Sindra Þór Sigríðarsyni Hilmarssyni. Sindri er einn þeirra sex sem Ingó hefur kært vegna æruðmeiðandi ummæla á netinu.
Ingó sendi Sindra kröfubréf í sumar vegna ummæla sem hann lét falla í kjölfar þess að aðgerðahópurinn Öfgar birti nafnlausar sögur meintra þolenda frægs tónlistarmanns. Ingó kærði einnig tvo blaðamenn, Kristlínu Dís Ingilínardóttur á Fréttablaðinu og Erlu Dóru Magnúsdóttur á DV, sem drógu þá ályktun að Ingó hafi verið nafnlausi tónlistarmaðurinn sem um ræddi í myndbandi Öfga.
Sindri var krafinn af Ingó um þrjár milljónir króna í miskabætur sem hann lét falla í athugasemdakerfi Vísis við grein um Ingó Veðurguð. Sindri hefur lýst því yfir að hann muni ekki greiða Ingó krónu með gati, hann verði að bæta sér upp auraleysið annars staðar.
Auður Björg Jónsdóttir, lögmaður Ingós, segir í samtali við fréttastofu að mál Ingós gegn Sindra sé það eina sem komið sé á dagskrá dómstóla.
„Þetta snýst um það að hann gengur mjög langt og fullyrðir ýmislegt sem ekkert var fyrir. Þetta er komið í réttan farveg, þetta er til úrlausnar hjá dómstólum þar sem reka á ágreiningsmál,“ segir Auður.
Athygli vakti fyrr á þessu ári þegar auðkýfingurinn Haraldur Þorleifsson, stofnandi Ueno og forsvarsmaður Römpum upp Reykjavík, bauðst til að greiða allan lögfræðikostnað þeirra sex sem Ingó krafði um miskabætur. Ekki náðist í Harald við gerð þessarar fréttar.
Fréttastofa reyndi að ná tali af Sigrúnu Jóhannsdóttur, lögmanni Sindra, en hún var þá við það að funda með Sindra vegna málsins. Það vakti athygli blaðamanns að annað mál gegn Sindra er á dagskrá Héraðsdóms Reykjavíkur á föstudag, 7. janúar, en það er mál Sverris Einars Eiríkssonar, lögfræðings og eiganda Nýju vínbúðarinnar, gegn Sindra.
Sindra og Sverri fóru í hár saman á Twitter í sumar þegar mál Kolbeins Sigþórssonar knattspyrnumanns var á allra vörum. Sverrir hafði þá átt í rökræðum við ýmsa á Twitter um málið og meðal annars rökrætt það við meðlimi baráttuhópsins Öfga. Sindri lét þá þessi ummæli falla um Sverri á Twitter: „Þetta er Sverrir. Sverrir á og rekur Nýju Vínbúðina. Sverrir eltir, áreitir og niðurlægir konur á internetinu. Konur sem berjast gegn kynferðisofbeldi. Meðlimi Öfga. Ekki vera eins og Sverrir.“ og „Þetta er Sverrir. Sverri finnst konur svo lítils virði að hann sér enga ástæðu til að hjálpa þeim ef þær hleypa ekki upp á sig að launum. Ekki vera eins og Sverrir.“
Sverrir sendi Sindra í kjölfarið kröfubréf um þrjár milljónir króna í miskabætur og rúmlega 220 þúsund krónur í lögmannskostnað. Þá hefur hann farið fram á að Sindri greiði miskabæturnar inn á reikning Samtaka um kvennaathvarf.