Það er ljóst að Gulzhan og Daulet verða ekki með barninu sínu á sex ára afmælisdegi þess á miðvikudaginn. Barnið verður í Kasakstan hjá systur Gulzhan, þar sem það hefur dvalið á meðan Útlendingastofnun og sýslumaður skiptast á að senda verkefnið á milli sín.
Útlendingastofnun hefur sagst munu veita barninu dvalarleyfi eins og foreldrunum, að því gefnu að sýslumaðurinn staðfesti ættleiðingu foreldranna á barninu. Sú gekk formlega í gegn í Kasakstan fyrr á þessu ári.
Foreldrarnir ná varla sambandi við fjölskylduna í Kasakstan eða við son sinn, þar sem kasöksk yfirvöld hafa slökkt á internetinu í landinu vegna sögulegra óeirða.
„Fyrir nokkrum dögum voru þrjú börn skotin til bana af hernum,“ segir faðir barnsins í samtali við fréttastofu, Daulet Bekey. „Við erum hrædd við þetta, þetta er ekki öruggt,“ segir hann.
Hjónin ættleiddu son sinn frá systur konunnar og hafa frá fyrsta degi verið foreldrar barnsins. Það var þó ekki fyrr en á þessu ári sem dómur í Kasakstan staðfesti ættleiðinguna með lögum og foreldrunum var ráðlagt að klára að ganga frá því ferli áður en þau tækju barnið með sér til endanlegrar dvalar á Íslandi.

Síðan breyttist staðan mjög hratt. Mótmæli sem hófust í landinu í vikunni hafa undið upp á sig, vel á annað hundrað mótmælenda eru látnir og neyðarástandið er algert. Almaty-hérað, þar sem barnið er statt, hefur orðið hvað verst úti í átökum undanfarinna daga.
Gulzhan Abdikadyrova, móðir barnsins, segist sakna sonar síns á hverjum degi. Hún rifjar upp símtal frá honum, þegar enn var símasamband á milli landanna: „Hann var heima og hann tók símann og sendi mér skilaboð. Mamma Gulzhan, ætlarðu að sækja mig? Hvenær ætlarðu að sækja mig? Af hverju kemurðu ekki? Og svo sagði hann: Mamma Gulzhan, ég elska þig.
Þetta var mjög erfitt því ég get ekki útskýrt þetta fyrir honum,“ segir Gulzhan.
Vilja veita barni sínu ást og umhyggju
Það sem Gulzhan getur ekki útskýrt fyrir barni sínu er að sýslumaður neitar að flýta fyrir umsókninni, þrátt fyrir neyðarástand.
Það eina sem íslensk stjórnvöld þurfa að gera samkvæmt lögmanni fólksins er að samþykkja ættleiðingu sem þegar er gengin í gegn og það í samræmi við alþjóðlega samninga sem Ísland er aðili að.
„Barnið er þar af leiðandi forsjárlaust úti í Kasakstan af því að kynforeldrar fara ekki með forsjá barnsins lengur. Það er klárlega ekki þessu barni fyrir bestu að vera í hættu þarna úti, þar sem það getur í raun átt von á því að vera í lífshættu. Það er klárlega þessu barni fyrir bestu að klára að fara yfir þessi gögn í einum grænum og koma þessu barni heim,“ segir Leifur Runólfsson lögmaður fólksins.
Í bréfi með umsókn um ættleiðingu sem hjónin sendu sýslumanninum segir: „Í kjölfar aðstæðna óskum við hjónin þess að okkur verði veitt heimild til þess að koma með barnið okkar til Íslands svo við getum lifað saman sem fjölskylda og séð barnið okkar dafna og þroskast og veitt því ást og umhyggju eftir svo langan aðskilnað.“
Þegar hefur öllum gögnum verið skilað til sýslumanns, sem hefur gefið það upp að hann telji sig enga undanþágu geta veitt frá málsmeðferð eða þá flýtt fyrir meðferð. Málið muni geta tekið mörg ár og í öllu falli aldrei aðeins nokkra mánuði.