Hitt hjólið er einnig í eigu Burkard en hann segist tilbúinn til að greiðar fundarlaun verði hjólinu komið til hans aftur. Það hafi mikið tilfinningalegt gildi.
Í samtali við Vísi segir Burkard hjólið vera einstakt því hann hafi látið hanna það sérstaklega fyrir Ísland. Hjólið sé í raun „Íslandshjól“.
Umrætt hjól notaði hann til að mynda til að hjóla þvert yfir landið á sex dögum síðasta vetur. Hann og þau tvö sem hjóluðu með honum eru þau einu sem hafa hjólað þessa leið, frá norðri til suðurs, að vetri til.
Vikuna eftir það hjólaði hann svo upp að eldgosinu á Reykjanesi og ljósmyndaði það.
Sjá einnig: Eins og að horfa inn í stóran pítsuofn
Haustið 2020 keppti Burkard í WOW Cyclothon. Þar kom hann fyrstur í mark og sló einstaklingsmet keppninnar en hann lauk keppni með tímann 52:36:19 og sló þannig fyrra met um rúmar þrjár klukkustundir. Þetta gerði hann með því að sofa ekkert á leiðinni. Degi eftir það ákvað hann að hlaupa Laugaveginn.
Burkard hefur komið reglulega til Íslands í um fimmtán ár og segist hann vonast til að búa hér með fjölskyldu sinni helming ársins.
Hann segist elska að vera á Íslandi og Íslendinga, sem séu „næstum því allir“ æðislegir.