Það eru tæp átta ár síðan Gunnar Ásgrímsson og Róbert Smári Gunnarsson slógu í gegn í viðtali á N4 um starf rosalega ungra Framsóknarmanna.
Þeir eru báðir frá Sauðárkróki en búa nú í Reykjavík, þar sem Gunnar er í kennaranámi og Róbert í fjarnámi í stjórnun ferðaþjónustu. Strákarnir eru enn bestu vinir.
„Reglulega þegar maður fer á TikTok sér maður sjálfan sig,“ segir Gunnar, sem hefur verið tekinn ívið meira fyrir af gárungunum en Róbert.
Róbert veit af hverju. „Hann átti náttúrulega hverja línu á fætur annarri þarna, bæði kakan og svo bænin.“
„Góð auglýsing fyrir smokka“
„Við erum náttúrulega ekki nógu gamlir til að fara í unga Framsóknarmenn sem er 16 ára og eldri, þannig að við ákváðum að hafa þetta rosalega ungir Framsóknarmenn,“ sagði Gunnar Ásgrímsson, þrettán ára.
Í athugasemdum við myndbandið eru sumir beinlínis hneykslaðir á hegðun unglinganna. „Af hverju eru þessar fertugu konur að þykjast vera grunnskólanemar?“ spyr einn. „Væri góð auglýsing fyrir smokka,“ skrifar annar.
Fyrir utan pólitískan eldmóð, vöktu kakan og bænin sérstaka athygli.
Kakan: Salthnetur og karamella, „skemmtileg og góð kaka“ eins og maðurinn sagði. Við smökkum eins köku í innslaginu hér að ofan.
Bænin: „Takk fyrir ömmu, takk fyrir pabba og mömmu, Ísland og hreina vatnið, og takk fyrir að Framsókn sé í ríkisstjórn.“ En er það heppni að Framsókn sé í stjórn, spyr spyrillinn þá, María Björn Ingvadóttir. Svarið: „Ja, ekki beint heppni, heldur bara... sjálfsagt.“
Framsókn er enn í ríkisstjórn í dag og í því ljósi bendir Gunnar á hið augljósa, að bænin sé sígild.
Sá ljósið og gekk í Sjálfstæðisflokkinn
Átta ár eru langur tími í pólitík. Róbert Smári hefur, líkt og faðir sinn Gunnar Bragi Sveinsson fyrrverandi ráðherra haft flokkaskipti frá því að viðtalið var tekið. En í tilfelli sonarins varð Miðflokkurinn ekki fyrir valinu heldur Sjálfstæðisflokkur.
„Ætli maður hafi ekki bara séð ljósið. Það er svona þegar maður er alinn upp við eitthvað og svo þroskast maður,“ segir Róbert.
Gunnar er svekktur: „Ég segi það nú um marga vini mína að þeir halda margir að þeir séu sjálfstæðismenn. En það er ekki meira en það. Þetta hefur engin áhrif á vinskapinn. Svo er ég kannski bara enn þá í afneitun um að hann sé farinn yfir.“