Áhöfnin áætlar að ísjakinn sé um 250 metrar á lengd, 260 metrar á breidd og 15 metra hár.
Eins og sjá má á meðfylgjandi myndum er jakinn V-laga og líklegt má telja að hann sé strandaður þar sem dýpi á svæðinu er um 80 metrar samkvæmt tilkynningu frá Landhelgisgæslunni.
Þar segir að nokkuð óvanalegt sé að borgarísjakar séu á þessum slóðum á þessum árstíma. Landhelgisgæslan telur ástæðu til að vara sjófarendur við ísjakanum enda geti hann reynst vafasamur, sérstaklega í myrkri.
„Mikilvægt er að þeir sem eiga leið um svæðið séu meðvitaðir um staðsetningu jakans. Þegar varðskipið Þór sigldi framhjá jakanum var hann á stað: 66°27,7N – 021°30,0V,“ segir í tilkynningunni.