Davíð Már Bjarnason, upplýsingafulltrúi Landsbjargar, segir í samtali við fréttastofu að planið sé núna að leita á meðan bjart er og aðstæður til. Fundað verður um stöðu mála í kvöld.
Óvíst er hvort hægt verði að leita á morgun vegna versnandi veðurs en Davíð segir mikilvægt að nota þennan glugga á meðan er bjart og gott veður til að leita af sem mestum þunga. Þangað til annað verði ákveðið verði leitað án afláts.
„Mér heyrist að það verði ekkert leitarveður á morgun og svo er von á gulum veðurviðvörunum á aðfaranótt mánudags,“ segir Davíð.
Hann segir leitaraðstæður þó sæmilegar sem stendur. Nokkuð hvasst hafi verið í morgun en síðan hafi lægt, þó sé enn mjög kalt í veðri. Víða sé þá snjór sem geri erfiðara fyrir þar sem flugvélin, sem leitað er að, er hvít.
Fram kemur á vef Veðurstofunnar að gul viðvörun fyrir allt landið taki gildi á aðfaranótt mánudags og gildi til klukkan 12 á mánudag.
„Þetta er sérlega djúp og áköf lægð sem nálgast landið úr suðvestri. Líkur eru á að áhrif veðursins verði umtalsverð.“
Veðurstofan segir viðvörunina „bara“ gula en liturinn sé notaður til að vara við veðri lengra fram í tímann en þrjá til fimm daga.
Í skýringartextanum fyrir gula viðvörun segir á vef Veðurstofunnar:
„Gul viðvörun getur einnig gefið til kynna að litlar eða miðlungs líkur séu á mjög áhrifamiklu veðri 3-5 daga fram í tímann.“
Þetta á einmitt við veðrið sem er í vændum. Þegar nær dregur og líkurnar á því spáin gangi eftir aukast hækkar viðvörunarstigið upp á appelsínugult. Þetta er útskýrt í því sem Veðurstofan kallar „Áhrifafylkið“. Þar sé horft á „líkur“ og „áhrif“.
„Viðvörunarlitur ákvarðast þannig af mati sérfræðinga á áhrifum væntanlegs veðurs og líkum á því að spáin gangi eftir.“