Rúmlega þúsund viðbragðsaðilar hafa tekið þátt í leitinni, þar á meðal á níunda hundrað björgunarsveitarmenn frá Slysavarnafélaginu Landsbjörg, þyrlusveit landhelgisgæslunnar, lögregla, séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar, almannavarnadeild ríkislögreglustjóra, sérsveit ríkislögreglustjóra, starfsmenn Isavia, einkaaðilar auk fjölmargra annarra.
Landhelgisgæslan segist í tilkynningu vilja þakka öllum þeim sem komið hafa að þessari umfangsmiklu leit fyrir óeigingjarnt og fórnfúst starf við krefjandi aðstæður. Rannsókn málsins og næstu skref eru í höndum lögreglunnar á Suðurlandi.

Viðbragðsaðilar sem unnið hafa unnið að leitinni eru komnir í hvíld og í hádeginu er fyrirhugaður stöðufundur þar sem farið verður yfir næstu skref. Lögreglan á Suðurlandi getur veitt frekari upplýsingar að þeim fundi loknum, segir í tilkynningu Landhelgisgæslunnar sem hefur haft leitina á forræði sínu.
Voru í útsýnisflugi
Fram hefur komið að flugvélin sem um ræðir var af gerðinni Cessna 172N með skráningarnúmerinu TF-ABB. Haraldur Diego, reynslumikill flugmaður og eigandi vélarinnar, var í ferð með þrjá erlenda ferðamenn í útsýnisflugi.

Haraldur er tæplega fimmtugur og hefur starfað sem flugmaður og ljósmyndari um árabil. Hann nýtur mikilla vinsælda í flugi yfir íslenskar náttúruperlur en hann rekur fyrirtækið Volcano Air Iceland. Haraldur er formaður AOPA, hagsmunafélags flugmanna og flugvélaeigenda á Íslandi, og ritstjóri Flugsins, tímarits um flugmál.
Leitaraðgerðir hófust um tvöleytið á fimmtudag eftir að ekkert hafði spurst til vélarinnar sem fór í loftið á Reykjavíkurflugvelli klukkan hálf tólf sama dag. Fljótlega beindist leitin að svæðinu sunnan Þingvallavatns og vestan Úlfljótsvatns. Í dag fannst olíubrák í Þingvallavatni og hófst leit í sunnanverðu vatninu þar sem fjarstýrður kafbátur var meðal annars notaður við leitina.
Vísir hefur fylgst með gangi mála við leitina frá því hún hófst eftir hádegi á fimmtudaginn í vaktinni hér að neðan.