„Hraðlestin“ Emelía búin að opna markareikning sinn fyrir Kristianstad Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. febrúar 2022 11:01 Emelía Óskarsdóttir byrjar vel hjá Kristianstad og er strax rómuð fyrir hraða sinn. Instagram/@kristianstadsdff Hin fimmtán ára gamla Emelía Óskarsdóttir er búin að skora sitt fyrsta mark fyrir aðalliði Kristianstad en hún var á skotskónum í sigri á Eskilstuna United í æfingarleik.
Kristianstad liðið er í æfingabúðum á Marbella á Spáni en það styttist óðum í tímabilið. Emelía kom til liðs Elísabetar Gunnarsdóttur í vetur og þurfti ekki margar mínútur til að láta að sér kveða í þessum leik sem endaði með 5-1 sigri Kristianstad. Emelía kom inn á 70. mínútu leiksins og kom að tveimur síðustu mörkum liðsins. Fyrst átti hún stangarskot sem Tilda Sandén fylgdi eftir og skoraði. Tilda launaði þá aðstoð með því að stinga boltanum inn á Emelíu sem slapp í gegnum og skoraði fimmta og síðasta markið. Hin mörkin skoruðu þær Evelyne Viens (2 mörk) og Tabby Tindell. Emelía er kölluð „Hraðlestin“ á heimasíðu Kristianstad í umfjölluninni um leikinn. Báðar voru þær Emelía og Tilda að skora sitt fyrsta mark fyrr aðallið Kristianstad. Emelía er því búin að opna markareikning sinn í atvinnumennsku fyrir sextán ára afmælið sitt sem er ekki fyrr en í byrjun næsta mánaðar. View this post on Instagram A post shared by Kristianstads DFF (@kristianstadsdff)
Sænski boltinn Mest lesið Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Enski boltinn Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg Enski boltinn Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Íslenski boltinn Hamar í góðum málum og Breiðablik jafnaði metin Körfubolti „Flæðið í sóknarleiknum var frábært“ Körfubolti „Út með ruslið og inn með íþróttaandann“ Sport Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti „Fráköstin hjá okkur voru hræðileg“ Körfubolti Uppgjörið: Haukar - Valur 101-66 | Haukar völtuðu yfir Val í fyrstu rimmunni Körfubolti „Við Em erum miklu stærri en þær allar“ Körfubolti Fleiri fréttir Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Sjá meira