Skoðun

Tónlistarborgin

Alexandra Briem skrifar

Fyrsta stefnumótunin sem ég fór fyrir var að skrifa stefnu um framtíðarskipan tónlistarnáms í Reykjavík til 2030, með góðu liðssinni bæði borgarfulltrúa og starfsfólks á skóla- og frístundasviði.

Það sem var strax augljóst var að það vantar meira framboð á tónlistarkennslu, það þarf að jafna tækifæri barna til að stunda tónlistarnám, draga úr kostnaðarþátttöku foreldra og það þarf að stuðla að jafnari dreifingu tónlistarkennslu milli borgarhluta.

Annað sem var augljóst var Reykjavík býr í dag að ákveðnu fjöreggi sem við viljum ekki glata. Tónlistarskólar og skólahljómsveitir eru að skila mjög öflugu og góðu starfi, sem er ekki bara gott fyrir þau sem fá að njóta þess sjálf, heldur stuðlar líka að því að við hin búum í borg sem hefur af að státa öflugu tónlistarfólki á heimsmælikvarða. Hljómsveitum, einstöku tónlistarfólki, og líka höfundum tónlistar og öðrum sem leggja frekar fyrir sig útsetningu eða hljóðblöndun. Þetta er mikill menningarauður sem ég vil ekki hugsa til að missa.

Stefnan miðar að því að efla tækifæri barna til tónlistarnáms, búa til hvata til þess að nýta frekar möguleika samspils og hópkennslu, og nýta betur tæknina. Á sama tíma þarf að fjölga plássum, bæði í tónlistarskólum og í skólahljómsveitum borgarinnar.

Það er óheppilegt að stefnumótunin sem fór í gang á vissum uppgangstíma árið 2019, við gengum stórhuga til leiks. En þegar vinnunni lauk 2021 var einfaldlega allt önnur tíð. Mikið tekjufall, fjölgun á fjárhagsaðstoð og óvissa um framtíðina. Það svigrúm sem við höfðum fór í að efla velferðarþjónustu, bregðast við í skólaþjónustu og fara í framkvæmdir til að sporna gegn atvinnuleysi. Það var því erfitt að geta ekki farið eins kröftuglega af stað og lagt hafði verið upp með.

Núna er yfirstandandi gerð aðgerðaáætlunar til að innleiða áherslur stefnunnar. Við náðum að koma tveimur áherslum til framkvæmdar í fjárhagsáætlun ársins 2022, en það eru annars vegar tilraunaverkefni um stofnun hverfiskóra í tveimur hverfum. Hitt tilraunaverkefnið snýst um fría hópkennslu í hljóðfæraleik.

Þessi verkefni eru þannig að með þeim næst mikill árangur tiltölulega hratt án þess að þarfnast mikils kostnaðar í upphafi. En það skiptir gífurlega miklu máli að þessi stefna gleymist ekki, að innleiðingin fari í gang af krafti þegar svigrúm eykst.

Við viljum áfram búa í öflugri tónlistarborg.

Höfundur er borgarfulltrúi Pírata og frambjóðandi í prófkjöri.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×