Skoðun

Brotlending ábyrgrar fjármálastjórnar

Sara Dögg Svanhildardóttir skrifar

Síendurtekin mantra sjálfstæðismanna í Garðabæ um ábyrga fjármálastjórn reynist enn og aftur innihaldslaus. Núna horfa hinir ábyrgu bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins framhjá reglum um útboð og það ekki í fyrsta sinn. Hvernig hægt er að kenna slíkt við ábyrgð er óskiljanlegt.

Nýverið ákvað meirihluti bæjarstjórnar í Garðabæ að fara ekki með samningsgerð um færanlegar húsaeiningar fyrir leikskóla í útboð, eins og lög um opinber innkaup kveða á um. Þess í stað var öðru sinni samið við ákveðið fyrirtæki um leigu á færanlegum einingum og nema viðskiptin við það fyrirtæki nú hálfum milljarði króna. Það reynist hverjum sem er erfitt að skilja ábyrgðina, sem kemur í veg fyrir að svo stór viðskipti fari í útboð.

Lögum samkvæmt ber að bjóða út öll kaup á þjónustu og vöru sem fer yfir 49 milljónir kr. viðmið. Meirihlutinn í Garðabæ getur sannarlega ekki borið fyrir sig að hann hafi verið innan viðmiðunarmarka í verði, þegar samið var um færanlegu einingarnar. Á bæjarstjórnarfundi var ekki hægt að skilja fulltrúa meirihlutans öðruvísi en svo, að útboð væri einfaldlega of mikið vesen, flókið og tímafrekt. Auðvitað er miklu þægilegra fyrir bæjarfulltrúana að losna við slíkt vesen og ráða einfaldlega öllu í krafti meirihlutans, en slíka hegðun er ekki hægt að skreyta með orðum um fagleg vinnubrögð og ábyrga stjórnun.

Sá meirihluti, sem vill öllu ráða, á líka bágt með að botna í hvers vegna fulltrúi minnihlutans vill taka afstöðu til mála út frá sömu gögnum og meirihlutinn sjálfur styðst við. Vísað var til lögfræðiálits, sem var sagt hafa skipt sköpum við ákvörðun þeirra um kaup á vöru án útboðs. Sams konar kaup af sama fyrirtæki höfðu áður verið gagnrýnd af minnihlutanum og hefði mátt ætla að tryggt yrði, að fenginni reynslu, að allir bæjarfulltrúar hefðu aðgang að sömu upplýsingum. Það var ekki gert. Þar ber bæjarstjórinn þyngstu upplýsingaskylduna.

Sofið á verðinum

Á kjörtímabilinu hafa sjálfstæðismenn sofnað á verðinum. Íbúum Garðabæjar hefur fjölgað hratt án þess að hugað hafi verið að uppbyggingu innviða, eins og leikskóla. Margt ungt fólk hefur sest að í nýju hverfi, Urriðaholti, fullt eftirvæntingar vegna annarrar möntru sjálfstæðismanna sem hljómað hefur um all langt skeið, um framúrskarandi þjónustu í leikskólamálum.

Í stað þess að tryggja kjarnaþjónustu fyrir barnafjölskyldur voru peningarnir settir í annað og nú hefur risið eitt allra glæsilegasta íþróttamannvirki landsins. Auðvitað erum við ánægð með húsið og það kemur sannarlega að góðum notum. En því miður var forgangsröðunin ekki í þágu barnafjölskyldnanna.

Vandinn í Garðabæ er ekki bág fjárhagsleg staða sveitarfélagsins, langt því frá. Garðabær er ríkt sveitarfélag, en meirihlutinn sem setið hefur við völd er hins vegar gjaldþrota. Hann missti sjónar á því sem máli skiptir, gleymdi að yfirlýsingar um ábyrgð þurfa að standast samanburð við verkin og fylgdi ekki eftir þeirri þróun, sem íbúar kölluðu eftir. Íbúar vilja og eiga rétt á að fá kjarnaþjónustu í sínu sveitarfélagi. Til að tryggja þá þjónustu þarf að forgangsraða í þágu íbúanna. Og taka ákvarðanir sem komast þeim best, jafnvel þótt það sé tímafrekt og flókið vesen að einhverra mati.

Höfundur er bæjarfulltrúi Viðreisnar




Skoðun

Skoðun

Hin­segin réttindi til fram­tíðar

Bjarndís Helga Tómasdóttir,Kristmundur Pétursson,Vera Illugadóttir,Jóhannes Þór Skúlason,Hannes Sasi Pálsson,Hrönn Svansdóttir,Sveinn Kjartansson skrifar

Sjá meira


×