„Þetta var fyrir mig eins og að detta ofan í holu fulla af demöntum. Það var einhvern veginn allt flott að mynda,“ rifjar ljósmyndarinn upp í nýjasta þættinum af RAX Augnablik.
Hann lýsir heimsókninni eins og að stíga inn í leikrit sem gerist fyrir hundrað árum.
„Þetta var eins og þú værir á leiksviði í leikriti, eins og þú hefðir farið úr sætinu þínu og gengið á milli og myndað. Þetta var ótrúlega flott leiksvið, eins og að fara aftur í tímann.“
Í þorpi í Síberíu sá hann nokkrum sinnum áhugaverða gamla konu á gangi.
„Það var eins og hún væri þríburi, hún var út um allt.“
RAX setti sig í hættu við að ná myndum af konunni, svo ákveðinn var hann að ná að smella af henni. Frásögnina má heyra í heild sinni í spilaranum hér fyrir neðan.
Næsta stóra ljósmyndaævintýri RAX fyrir stóra Norðurslóðaverkefnið er að heimsækja Síberíu og hefði hann verið farinn af stað ef ekki væri fyrir innrás Rússa í Úkraínu. Í tilefni af ferðinni verða sýndir þrír þættir af RAX Augnablik um myndir sem hann hefur tekið í Síberíu á ferlinum og þetta er fyrsti hlutinn. RAX Augnablik eru örþættir og þátturinn Í gær var ég ung, er rúmar fjórar mínútur.
Í þáttunum RAX AUGNABLIK segir ljósmyndarinn Ragnar Axelsson sögurnar á bak við margar af sínum þekktustu myndum. Ragnar hefur starfað á vettvangi í meira en fjörutíu ár og eru sögurnar hans ævintýralegar. Nýr þáttur kemur út á hverjum sunnudegi hér á Vísi og á Stöð 2+.
Hægt er að sjá alla þættina HÉR á Vísi.