Konstrakta vann keppnina Pesma za Evroviziju 2022 í Serbíu fyrr í mánuðinum. Síðan þá hafa tæpar tíu milljónir spilað á Youtube upptökuna af henni syngja lagið In Corpore Sano í undankeppninni. Þess má geta að það er meira en allur íbúafjöldi Serbíu sem telur 8,7 milljónir manna.
Lagið er komið á vinsældarlista streymisveita um allan heim. Á TikTok má nú þegar finna yfir 8.000 myndbönd þar sem lagið er notað og hafa þau verið skoðuð yfir 100.000.000 sinnum. Það verður því spennandi að sjá hvort lagið fari ofar í veðbönkum á næstu vikum.
Texti lagsins vekur athygli en þar er spurt hvert sé leyndarmálið á bak við heilbrigt hár leikkonunnar og hertogaynjunnar af Sussex, Meghan Markle? Konstrakta svarar svo spurningunni í laginu.