Útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa í sameiningu að Hlustendaverðlaununum og útvarpsfólk stöðvanna sá um að afhenda verðlaunin. Írafár, Aron Can, Sigga Beinteins, Kælan mikla, Bríet, GDRN, Jón Jónsson og Hugo voru á meðal þeirra sem komu fram..
Markmiðið með Hlustendaverðlaununum er að gefa íslenskum útvarpshlustendum og tónlistarunnendum tækifæri að velja og verðlauna íslenskt tónlistarfólk, hljómsveitir og einstaklinga sem sköruðu fram úr í tónlist á síðastliðnu ári.

93 þúsund atkvæði
Kosning til verðlaunanna fór fram hér á Vísi og bárust alls um 93 þúsund atkvæði en kosið var í átta flokkum.
GDRN var valin söngkona ársins og Aron Can söngvari ársins. Aron átti mjög gott síðasta ár og plata hans ANDI, LÍF, HJARTA, SÁL var kosin plata ársins. Ef ástin er hrein var kosið lag ársins að þessu sinni en flytjendur eru Jón Jónsson og GDRN. Bríet var kosin poppflytjandi ársins og Kaleo rokkflytjandi ársins.


Tónlistarmaðurinn HUGO var valinn nýliði ársins en hann hefur enn ekki tekið af sér grímuna og afhjúpað raunverulegt nafn sitt. Myndband ársins var við lagið Spurningar sem Birnir flutti ásamt Páli Óskari.
Lista yfir alla sem hlutu tilnefningu í ár má finna hér fyrir neðan.
Lag ársins
Ef ástin er hrein - Jón Jónsson, GDRN
Einnig tilnefnd:
- Ég var að spá - RAKEL, JóiPé, CeaseTone
- FLÝG UPP - Aron Can
- Spurningar - Birnir, Páll Óskar
- Segðu mér - Friðrik Dór
- Ástrós - Bubbi Morthens, BRÍET
- Veldu stjörnu - Ellen Kristjánsdóttir, John Grant
Poppflytjandi ársins
BRÍET
Einnig tilnefnd:
- Jón Jónsson
- Herra Hnetusmjör
- Daði Freyr
- Friðrik Dór
- Bubbi Morthens
- GDRN
Rokkflytjandi ársins
Kaleo
Einnig tilnefnd:
- superserious
- Skrattar
- Sign
- GRÓA
- BSÍ
- Hylur
- DIMMA
Söngkona ársins
GDRN
Einnig tilnefndar:
- BRÍET
- Sigrún Stella
- Rakel Sigurðardóttir
- Margrét Rán
- Kristín Sesselja
- Klara Elias
- Ellen Kristjánsdóttir
Söngvari ársins
Aron Can
Einnig tilnefndir:
- Jökull Júlíusson
- Kristófer Jensson
- Herra Hnetusmjör
- Friðrik Dór
- Jón Jónsson
- Bubbi Morthens
- Sverrir Bergmann
Plata ársins
ANDI, LÍF, HJARTA, SÁL - Aron Can
Einnig tilnefndar:
- Undir Köldum Norðurljósum - Kælan Mikla
- Kick The Ladder - Kaktus Einarsson
- Lengi lifum við - Jón Jónsson
- Sjálfsmynd - Bubbi
- Bau Air - Ingi Bauer
- KBE kynnir: Flottur Skrákur 2 - Herra Hnetusmjör
- Surface Sounds - KALEO
Nýliði ársins
HUGO
Einnig tilnefnd:
- Hylur
- BSÍ
- Rakel Sigurðardóttir
- Karen Ósk
- Poppvélin
- Þorsteinn Einarsson
- FLOTT
Myndband ársins
Birnir og Páll Óskar - Spurningar. Leikstjóri: Magnús Leifsson.
Einnig tilnefnd:
- Kælan Mikla - Hvítir Sandar. Leikstjóri: Máni Sigfússon.
- superserious - Let's Be Grown Ups. Leikstjórar: Daníel Jón og Haukur Jóhannesson.
- Aron Can - FLÝG UPP X VARLEGA. Leikstjóri: Erlendur Sveinsson.
- Þorsteinn Einarsson - Shackles. Leikstjóri: Niklas Schwärzler.
- Daði & Gagnamagnið - 10 Years. Leikstjóri: Guðný Rós Þórhallsdóttir.
- Hipsumhaps - Meikaða. Leikstjóri: Lil Binni.
- Inspector Spacetime - Dansa og bánsa. Leikstjórar: Nikulás Tumi og Arína Vala Þórðardóttir.
- Daughters of Reykjavík - HOT MILF SUMMER. Leikstjórn: Arína Vala Þórðadóttir.
- Kaleo - Break My Baby. Leikstjórn: Hörður Freyr Brynjarsson.