Ómar Ingi markahæstur í jafntefli | Viktor Gísli lokaði búrinu Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 29. mars 2022 20:35 Ómar Ingi Magnússon átti flottan leik í kvöld. Getty/Uwe Anspach Ómar Ingi Magnússon var markahæsti maður vallarins er Magdeburg og Sporting skildu jöfn í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Evrópudeildarinnar í handbolta í kvöld, 29-29. Þá átti Viktor Gísli Hallgrímsson frábæran leik í marki GOG er liðið vann tveggja marka sigur gegn Bidasoa Irun.
Heimamenn í Sporting höfðu yfirhöndina gegn Íslendingaliði Magdburg í fyrri hálfleik og leiddu með þremur mörkum þegar gengið var til búningsherbergja. Gestirnir í Magdeburg voru hins vega fljótir að jafna metina í síðari hálfleik og mikið jafnræði var með liðunum það sem eftir lifði leiks. Hvorugu liðinu tókst að slíta sig frá andstæðingum sínum og niðurstaðan varð jafntefli, 29-29. Ómar Ingi Magnússon var sem fyrr segir markahæsti maður vallarins, en hann skoraði átta mörk fyrir Magdeburg og gaf auk þess þrjár stoðsendingar. Gísli Þorgeir Kristjánsson komst ekki á blað. Magdeburg og Sporting mætast á nýjan leik í Þýskalandi að viku liðinni og þá kemur í ljós hvort liðið fer áfram í átta liða úrslit. Á sama tíma mættust Bidasoa Irun og GOG á Spáni þar sem Viktor Gísli Hallgrímsson var í stuði í marki GOG. Viktor varði 21 bolta, eða tæplega 45 prósent af þeim skotum sem hann fékk á sig. Viktor og félagar unnu leikinn með tveggja marka mun, 30-28, og eru því í góðri stöðu fyrir heimaleikinn sem fer fram að viku liðinni.
Handbolti Mest lesið „Hann er tekinn út úr leiknum“ Körfubolti Grættu dómarann og hættu við blaðamannafund Fótbolti Ráðgátan leyst: Ólafur Kristjánsson hafði rétt fyrir sér Íslenski boltinn „Ég get ekki lýst þessu, ég á engin orð“ Körfubolti Valur einum sigri frá úrslitum Handbolti „Vilja allir spila fyrir Man United“ Enski boltinn Dagskráin í dag: Íslenskur körfubolti, allskonar fótbolti og margt fleira Sport Uppgjörið: Álftanes - Tindastóll 94-82 | Einvígið jafnt eftir mikinn hasar Körfubolti Rúnar staðfestir að Fram þurfti annan markvörð Íslenski boltinn Fyrsta deildartap PSG Fótbolti Fleiri fréttir Valur einum sigri frá úrslitum Aldís Ásta og stöllur í úrslitaeinvígið Hópur Snorra fyrir síðustu leikina: Reynir að verða einn af strákunum okkar „Náðum að opna hlutina vel fyrir Ása“ „Magnús Öder hefði fengið þrjú rauð fyrir sömu brot“ Uppgjörið: FH - Fram 36-20 | FH ætlaði augljóslega ekki í snemmbúið sumarfrí Andri Már magnaður í naumu tapi Alfreð kom öllum á óvart með vali sínu „Hætti þessari fortíðarþráhyggju minni með Vestmannaeyjar“ Embla og Eva Björk í ham þegar Stjarnan komst yfir Orri rólegur þegar Sporting tapaði fyrri leiknum Aron tryggði Veszprém jafntefli í Magdeburg Óvænt tap hjá Kolstad en Dana og Óðinn með allt á hreinu „Svona er úrslitakeppnin“ ÍR í undanúrslit eftir sigur með minnsta mun Elvar Örn frábær þegar Melsungen marði sigur Uppgjörið: Afturelding - Valur 31-23 | Mosfellingar jöfnuðu metin með stæl Anton og Jónas dæma stórleikinn í Ungverjalandi Selfoss jafnaði metin Fram einum sigri frá úrslitum Höfðu betur eftir framlengdan leik Aldís Ásta og stöllur einum sigri frá úrslitunum Einar Þorsteinn hafði betur gegn Guðmundi Braga Elvar Örn öflugur þegar Melsungen jafnaði toppliðið að stigum Haukar í undanúrslit á meðan ÍR og Selfoss þurfa oddaleik Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Lena Margrét til Svíþjóðar Orri Freyr skaut Sporting í undanúrslitin Dramatík á Hlíðarenda Sturlaður Viggó tryggði Erlangen stig Sjá meira