Fyrst kom íshokkíliðið Las Vegas Golden Knights, þá WNBA-liðið Las Vegas Aces og loks NFL-liðið Las Vegas Raiders. Þá er mikið talað um að borgin fái líka NBA-lið í næstu framtíð.
Nýjustu fréttirnar úr íþróttalífi borgarinnar snúast hins vegar um formúlu 1-kappaksturinn.
Það verður nefnilega haldin formúlu 1 keppni á hinni frægu Las Vegas Strip í nóvember 2023.
Keppnin mun fara fram um kvöld og undir hinum þekktu ljósum næturlífsins í Las Vegas.
Keppnin fer fram á laugardagskvöldi en ekki á sunnudegi eins og vaninn er.
Brautin verður 6,2 kílómetrar og munu bílarnir fara fram hjá þekktum kennileitum borgarinnar eins og Caesars Palace, Bellagio-gosbrunninum og Mandalay Bay.
Las Vegas mun því bætast í hópinn með Austin og Miami sem eru líka bandarískar keppnisborgir í Formúlu 1. Það hefur verið keppt í Austin í mörg ár en Miami hýsir keppni í fyrsta sinn í ár.
Áhugi Bandaríkjamanna á formúlu eitt hefur aukist gríðarlega og þakka menn Netflix þáttunum „Drive to Survive“ mikið fyrir það.