Tillagan verður lögð fyrir á ársþingi HSÍ sem fram fer á laugardag.
Síðustu ár hafa átta lið leikið í úrvalsdeild kvenna, samanborið við tólf lið í úrvalsdeild karla. Í 1. deild kvenna léku svo í vetur ellefu lið, þar af fimm ungmennalið. Fyrir utan ungmennalið léku því 14 kvennalið í deildunum tveimur í vetur.
Tillaga HK er sú að þegar 10-16 félög tefli fram liði verði spilað í einni deild. Þar verði leikin ein umferð fyrir áramót og deildinni svo skipt upp í tvo jafna hluta eftir áramót; efri og neðri hluta. Eftir áramót verði svo leikin tvöföld umferð í hvorum hluta.
Tillagan felur einnig í sér að áfram verði sex liða úrslitakeppni að deildakeppni lokinni, líkt og úrslitakeppnin sem hefst í kvöld. Hins vegar leggur HK til að tvö efstu liðin úr neðri hluta fari fyrst í umspil við liðin í 5. og 6. sæti efri hluta, um sæti í úrslitakeppninni. Aukinheldur að í umspilinu verði leikinn einn leikur, á heimavelli liðanna úr neðri hlutanum.
Verði auðveldara að halda leikmönnum og fá leikmenn
HK endaði í næstneðsta sæti Olís-deildarinnar í vor og byrjar á morgun umspil ásamt þremur liðum úr Grill 66-deildinni um eitt sæti í Olís-deildinni á næstu leiktíð. Það umspil verður þó óþarft ef tillaga HK-inga verður samþykkt.
Í greinargerð með tillögunni segir orðrétt:
-
Við teljum að þetta muni auðveldra félögum að halda leikmönnum innan sinna raða.
o Eftir að félög hafa t.d. komið upp tvisvar á 3 árum og fallið í bæði skiptin þá
sjáum við það því miður ekki að þau haldi leikmönnum sem eru í stærri
hlutverkum og vilja meira. Það dreymir flesta um að spila á stóra sviðinu, þ.e.a.s.
sjónvarpsleiki, úrslitakeppni o.s.frv.
-
Það er ofboðslega erfitt að komast upp og halda sæti sínu í 8-liða efstu deild
o Nema að leggja til miklar fjárhæðir í leikmannakaup og eru það fjárhæðir sem að
fá félög hafa á sínum snærum. Þetta er ekki atvinnumannadeild.
-
Auðveldar félögunum að sækja leikmenn því deildin sem spilað er í heitir efsta deild.
o Leikmenn sem spilað hafa með u-liðum eða þeir sem eru aftarlega í
goggunarröðinni í sínum félögum hugsa sér miklu frekar til hreyfings.
Á þinginu á laugardag verður einnig lögð fyrir tillaga Fjölnis og Vængja Júpíters um strangari reglur varðandi ungmennalið, með það í huga að áhrif ungmennaliða verði minni varðandi það hvaða lið fari upp úr 1. deild í úrvalsdeild.