Skoðun

Neyðarkall frá móður jörð

Helga Björt Jóhannsdóttir skrifar

Loftslagsbreytingar eru stærsta áskorunin sem við stöndum frammi fyrir í dag og það er mikilvægt að stjórnvöld bregðist við vandamálum sem þeim fylgja sem fyrst.

Þetta er vandamál allra og þurfum við að hugsa stórt og standa saman, því við erum hluti af heimsþorpinu. Það er margt sem við getum gert í Fjarðabyggð til þess að bregðast við loftslagsbreytingum eins og að huga að sorphirðu og fráveitumálum, lífrænni ræktun, endurheimt votlendis og skóga, stuðla að orkuskiptum, hringrásarhagkerfi og sjálfbærni.

Loftslagsbreytingar eru ekki nýtt vandamál heldur vandamál sem stjórnvöld og eldri kynslóðir hafa hundsað í áratugi. Afleiðingar eins og hækkun sjávarmáls, súrnun sjáv­ar, öfgar í veðri, bráðnun jökla og eyðilegging vist­kerfa eru þegar búnar að eiga sér stað á síðustu áratugum. Ef engar breytingar verða og loftslagsaðgerðir halda áfram að vera svona lítilvægar þá mun staðan einungis versna til muna.

Það er ekki rétt að við eigum að bíða eftir að unga fólkið í dag, sem virðist vera það fólk sem pælir mest í þessu, mennti sig og þá verði allt í lagi. Þetta þarf að gerast núna og helst í gær.

Unga fólkið erfir jörðina og mikilvægt er að þau sem hafa valdið í dag, gamlir sem ungir, taki ákvarðanir með það að leiðarljósi að komandi kynslóðir hafi jörð til þess að taka við.

Höfundur skipar 4. sæti á framboðslista Vinstri grænna í Fjarðabyggð fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×