Skoðun

Kjósum rétt

Júlíus Þór Jónsson skrifar

Einni litlausustu kosningabaráttu seinni ára fer senn að ljúka. Nánast ekkert hefur verið rætt eða tekist á um málefni, heldur hafa umbúðir ráðið ferðinni en ekki innihaldið.

Heilu blaðagreinarnar og sjónvarpsþættirnir hafa snúist um einstaklingana en ekki málefnin , það sem máli skiptir í kosningabaráttu og stjórnmálum. Sósugerð, gæludýr, fataskápar og annað í þeim dúr tekið ofar en heilbrigðismál, dagvistun, málefni eldri borgara, og samgöngur, svo nokkuð sé nefnt. Ábyrgð fjölmiðla hvað þetta varðar er mikil. Þetta er röng og varasöm þróun. Kosningabaráttan ætti að snúast um alvöru staðreyndir og hvernig menn ætla að gera betur komist þeir til valda. Í því sambandi mætti nefna eftirfarandi:

1. Starfsmönnum borgarinnar fjölgað um 1000 á kjörtímabilinu, eða tæp 20% , en ekki er að sjá að grunnþjónusta hafi batnað þó að gjöld hafi verið hækkuð ( leikskólar, sorptæming, þrif ,strætó og fl) + langar og tímafrekar boðleiðir í ráðhúsinu.

2. Starfsmenn borgarinnar eru um 12000, sem gerir c.a. 11 starfsmenn á hverja 1000 íbúa. Þetta er mun meira en í nágranasveitarfélögunum.

3. Launakostnaður borgarinnar er rúmlega 70 % af tekjum, sem er of mikið og ekki hægt að reka fyrirtæki á þann veg.

4. Skuldasöfum stóraukist, eða um 120 milljarða sl. 4 ár. Heildarskuldir eru nú um 420 milljarðar. ( Börn og barnabörn greiða óráðsíuna í framtíðinni) .

5. Fasteignagjöld í hæstu hæðum á landsvísu. Reykjavík ætti að vera með lægsta útsvarið, vegna stærðarhagkvæmni.

6. Viðvarandi lóðaskortur viðhafður vísvitandi að virðist , til að mynda skort á húsnæðismarkaði og hækka húsnæðis og leiguverð. Þéttingarstefna er of mikil .

7. GAJA moltustöð Sorpu er í algjörum ólestri, búið að setja í það 7 milljarða og nú er ný húsbyggingin dæmd ónýt. Móður fyrirtækið Sorpa leikur frjálsum hala, hækkar gjaldskrár um allt að 300%.

8. Borgarlína ,hvaðan kemur hún , hvert fer hún ? engin veit hvað verkefnið mun kosta, arðsemi óljós og ekki vitað hverfing á að fjármagna.

9. Enginn vilji til að leysa umferðarvandan , með mislægum gatnamótum , ljósastýringum og álíka lausnum. Þrengja bara götur og búa til flöskuhálsa og tafir. Alger andstaða við bílinn, þarfasta þjóninn, samanber stefnu Pírata.

10.  Sundabraut viljayfirlýsing um framkvæmdir eftir 9 ár, sem verður líklega svikið eftir kosningar, ef núverandi stjórnendur fá brautargengi.

11. Farið fram hjá útboðsreglum ansi oft á kjörtímabilinu með tilheyrandi málaferlum og þá jafnvel skaðabótum. Er vinavæðing í gangi, samanber gjafagjörning í Gufunesi, bensínstöðva lóða deilur og bragga málið. ?

12. Þrengt að Reykjavíkurflugvelli aftur og aftur . Samningar ekki virtir .

Nú er stutt til kosninga og áríðandi að allir greiði atkvæði til framtíðar. Látum innihaldið ráða, en ekki umbúðirnar. Kjósum samkvæmt því á Laugardaginn, og kjósum rétt!

Höfundur er íbúi í Reykjavík.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×