Skoðun

Vel­ferð og um­hyggja í Rang­ár­þingi eystra

Árný Hrund Svavarsdóttir og Sigríður Karólína Viðarsdóttir skrifa

Öll erum við misjöfn eins og við erum mörg, við höfum misjafnar þarfir og væntingar. Sumir hafa sterkt bakland en aðrir ekki, sumir eru einmanna en aðrir ekki. Félagslegi þátturinn er því mjög mikilvægur hvort sem við erum ung eða gömul. Við viljum gera átak í því að hvetja eldri íbúa til þátttöku í félagsstarfi til að koma í veg fyrir einmannaleikann.

Er við lítum til eldri íbúa okkar, sem njóta sinna efri ára, þá er nauðsynlegt að við tryggjum þeim góða þjónustu. Starf félags eldri borgara hér í Rangárvallasýslu er mjög gott og viljum við efla það enn frekar. Með því að finna þeim varanlegt húsnæði til félagsstarfs getum við skapað góðar aðstæður fyrir samveru, viðburði og iðkun tómstunda. Hlutverk þannig félagsmiðstöðvar eldra fólks tryggir, félagsskap, tómstundir og þá drögum við úr hættu á félagslegri einangrun. Einnig viljum við stuðla að heilsueflingu eldri íbúa og hvetja þá til fjölbreyttra hreyfinga.

Við viljum kanna möguleika á því að byggja upp þjónustuíbúðakjarna þar sem heimili og þjónusta væru tengd saman. Íbúðirnar væru leiguíbúðir sem tengjast sameiginlegri þjónustu, með því skapast öryggi og samvera. Við viljum efla ýmsa þjónustu og aðstoð til dæmis með umhirðu garða og fleira fyrir eldri íbúana okkar.

Í samfélaginu okkar er mikilvægt að eiga öfluga félagsþjónustu fyrir fólkið okkar. Við viljum að allir hafi jöfn tækifræi til að búa í sveitarfélaginu okkar. Við viljum bæta upplýsingagjöf um það hvað félagsþjónustan býður fólki upp á.

Í lögum um félagsþjónustu sveitarfélaga er kveðið á um skipan í öldungaráðs. Það ráð viljum við efla enn frekar og virkja aðkomu þess til ákvarðanatöku sveitastjórnar. Þannig getum við tengt samfélag eldri íbúa inn í stjórnsýsluna til að koma sínum málefnum á framfæri.

Það er alveg ljóst að við þurfum að gera betur þegar kemur að þjónustu við fatlað fólk í sveitarfélaginu. Félagsþjónusta Rangárvalla- og Vestur Skaftafellssýslu sér um framkvæmd þjónustu við fatlað fólk og sinnir því eftirliti á okkar svæði. Leitast er eftir því að tryggja fötluðu fólki jafnrétti, gera því kleift að lifa eðlilegu lífi og skapa skilyrði fyrir þau að taka virkan þátt í lífinu. Við viljum bæta aðgengi fatlaðra í sveitarfélaginu, með því að tryggja aðgengi við allar opinberar byggingar sveitarfélagsins auk gangstíga, gatna og annarra svæða. Einnig viljum við auka möguleika á hreyfingu fatlaðra meðal annars með því að koma upp lyftubúnaði við sundlaugina á Hvolsvelli. Við viljum byggja búsetuúrræði fyrir fatlað fólk í samvinnu við Bergrisann bs, á kjörtímabilinu.

Kæru kjósendur, það er trú okkar fólks á D-lista Sjálfstæðismanna og annarra lýðræðissinna að með samtali og samvinnu við íbúa er varðar málefni sveitarfélagsins, þá munum við uppskera gott samfélag. Við ætlum að vinna að heilindum fyrir sveitarfélagið okkar. Merktu X við D næstkomandi laugardag.

Höfundar skipa 2. og 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Rangárþingi eystra




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×