Måneskin hefur verið í Los Angeles í Bandaríkjunum við tökur og fögnuðu því aðdáendur þeirra þegar tilkynnt var að hljómsveitin kæmi fram á Eurovision. Einhverjir óttuðust þó að hljómsveitin myndi senda myndefni frá Bandaríkjunum en nú er það staðfest að ítölsku stjörnurnar mæta í Eurovision höllina.
Sigurvegarar Eurovision 2021 munu líklega æfa á sviðinu á lokaðri einkaæfingu samkvæmt okkar heimildum hér í blaðamannahöllinni.

Måneskin hefur notið mikilla vinsælda síðan hljómsveitin vann Eurovision fyrir hönd Ítalíu á síðasta ári með laginu Zitti e buoni. Ábreiða þeirra af laginu Beggin sló sem dæmi í gegn um allan heim.
Á Eurovision munu þau flytja nýjasta lagið sitt Supermodel sem kom út fyrr í dag. Lagið má heyra hér fyrir neðan.
Sylvía Rut Sigfúsdóttir og Dóra Júlía Agnarsdóttir eru fulltrúar fréttastofunnar á Eurovision í Tórínó á Ítalíu. Munu þær birta fréttir, viðtöl, hlaðvörp og auðvitað líka reglulega þætti af Júrógarðinum.
Alla umfjöllun okkar um Eurovision keppnina má finna HÉR á Lífinu á Vísi.