Magnús hlaut 32 atkvæði, en Kristján Steinar Kristjánsson bóndi hlaut næstflest atkvæði, eða tuttugu. Alls voru 67 á kjörskrá og greiddu 44 atkvæði, sem gerir um 66 prósent kjörsókn. Einn atkvæðaseðill var auður og einn ógildur.
Bjarney Jónsdóttir, sem sæti átti í kjörstjórn, var að störfum í fjósinu þegar fréttastofa náði tali af henni og þuldi upp úrslit kosninganna eftir minni, en Bjarney var einmitt sjálf ein þeirra sem var kjörin í hreppsnefnd í kosningunum á laugardag.
Eftirfarandi munu skipa hreppsnefnd Skagabyggðar næsta kjörtímabil:
- Magnús Björnsson bóndi, 32 atkvæði
- Kristján Steinar Kristjánsson bóndi, 20 atkvæði
- Vignir Sveinsson bóndi, 19 atkvæði
- Bjarney Jónsdóttir bóndi, 19 atkvæði
- Erla Jónsdóttir, rekstrarfræðingur og bóndi 15 atkvæði
Við óbundna kosningu eru allir kjósendur í sveitarfélaginu í kjöri með þeirri undantekningu að þeir sem setið hafa í sveitarstjórn eitt kjörtímabil eða lengur geta skorast undan kjöri, tilkynni þeir yfirkjörstjórn það fyrir lok framboðsfrests. Bjarney sagði að þrjú þeirra sem áttu sæti í hreppsnefnd á nýliðnu kjörtímabili hafi skorast undan kjöri að þessu sinni.
Íbúar í Skagabyggð höfnuðu síðasta sumar sameiningu fjögurra sveitarfélaga í Austur-Húnavatnssýslu en þar kusu 29 kusu gegn tillögunni en 24 með henni. Alls greiddu þá 53 íbúar Skagabyggðar atkvæði í kosningunni og voru sjötíu á kjörskrá.
Tillagan sneri að sameiningu sveitarfélagsins við Blönduósbæ, Húnavatnshrepp og Sveitarfélagið Skagaströnd. Ekkert var því úr sameiningu sveitarfélaganna, en síðan hafa Blönduós og Húnavatnshreppur sameinast.