Þau Þórhildur og Kjartan voru gestir í 57. þætti af hlaðvarpinu Betri helmingurinn með Ása en hægt er að hlusta á þáttinn í heild sinni neðst í greininni. Umsjónarmaður þáttanna er Ásgrímur Geir Logason.
Saman síðan í menntaskóla
Í dag eru þau búin að vera gift í níu ár og eiga saman tvo stráka en parið byrjaði saman þegar þau kynntust í Menntaskólanum í Reykjavík. Þau segjast strax hafa orðið mikið klessupar, eins og þau orðuðu það. Hún bjó í Keflavík og þurfti að keyra á milli og þá var þá hentugra að gista hjá honum í bænum.

Opnuðu sambandið fyrir fjórum árum
Fyrir um fjórum árum síðan tóku þau þá ákvörðun að opna sambandið og eiga þau í dag í fjölástar eða poly-sambandi. Hugmyndin kom frá vinkonu Þórhildar sem var að skoða slíkt form en fram að því höfðu þau aldrei íhugað það sjálf. Þau segja öll pör vera með sína útfærslu á sambandsforminu en sjálf vilja þau hafa sem fæstar reglur.
„Því fleiri reglur sem þú ert með, því fleiri reglur er hægt að brjóta.
Grundvallar markmiðið með þessu er einmitt að hafa meira frelsi og slaka á þessum reglum og vera ekki að reyna að stjórna aðstæðum,“ segir Þórhildur.
„Verkefnið er svolítið að komast yfir óöryggið og læra að lifa með afbrýðiseminni eða óttanum um að manneskjan sé að fara að yfirgefa þig; læra svona að lifa með því frekar,“ segir hún einnig.
Fannst það henta sér að vera ekki einkvæn
„Eftir alveg dágóðan umhugsunartíma og allskonar umræður um hitt og þetta vorum við bara sammála um að það meikaði sens, að vera ekki einkvæn,“ segir Kjartan um ákvörðunina.
„Við höfðum alveg opið fyrir þann möguleika að þetta myndi ekki henta okkur eða við myndum hætta við,“
segir hann um upphafið og Þórhildur bætir við að þetta hafi verið hálfgerð tilraun. Hún segist hafa lesið sér vel til um fjölástir áður en þau opnuðu sambandið sitt og því hafi þau verið búin að ræða það vel.
„Við erum auðvitað bara eins og allir aðrir, alin upp við lögmálið að langtímasambönd eiga að vera einkvænissambönd,“ segir Kjartan. Þau segjast hafa fundið fyrir mikilli forvitni hjá fólkinu í kringum sig og fengu allskonar viðbrögð þegar þau sögðu frá áformunum.
„Þetta er mjög áhugavert svona mannfræðilega og samfélagslega, þetta lögmál um að þú ert í langtímasambandi með einni manneskju og þú ert trú henni og þannig sannarðu ást þína og þess vegna er sambandið ykkar einhvers virði,“ segir Kjartan. Hann segir þó að sögulega og þróunarlega séð sé þetta ekki endilega réttasta eðli mannsins.
Sundur og saman
Kjartan starfar í dag sem læknir og er hann í sérnámi í röntgenlækningum og Þórhildur heldur úti Instagram-reikningnum Sundur & Saman þar sem hún fjallar um sambönd og samskipti. Hún heldur einnig námskeið og hjálpar fólki að bæta sambandið sitt hvort sem það er gert saman eða í sitthvoru lagi.
Engin lausn
„Við vorum alveg á rosalega góðum stað og ég held að það sé kannski ástæðan fyrir því að við vorum ekkert sérstaklega hrædd,“ segir Þórhildur um sambandið áður en þau opnuðu það.
„Margir verða einhvern veginn svona þreyttir í sambandi til langstíma og áhuginn einhvernveginn dettur niður og vantar svolítið svona spennuna og gleðina og allskonar, sem er bara eðlilegt,“ segir Þórhildur.
Hún segir það að vera í opnu sambandi geta opnað á leiðir til þess að vera skapandi og halda í spennu í sambandinu. Hún segir einstaklinga þó þurfa að vera í góðu sambandi þegar opnað sé á það því það sé engin lausn á vandamálum séu þau til staðar:
„Það er bara bensín á eldinn.“
Tíminn saman betur nýttur
Þórhildur á annan kærasta utan hjónabandsins en þeir Kjartan eru ekki tengdir á neinn hátt. Þau segja að það geti þó verið flókið að skipuleggja tímann í kringum fleira en eitt ástarsamband.
„Þú ert takmarkaður af hversu mikinn tíma þú hefur,“
segir Kjartan. „Ef einhver tekur sér upp nýtt hobbý og vill vera hlaupandi alla daga eða í golfi, það er bara allskonar hlutir sem toga okkur í allar áttir,“segir Þórhildur. „Þannig að þessu leyti til, skipulags og tímalega, er það ekkert frábrugðið þessu.“
Þau segjast nýta tímann sem þau eiga saman enn betur og nú sé það gæði fram yfir magn og eru þau dugleg að rækta rómantíkina sín á milli.
Þáttinn má heyra í heild sinni hér að neðan: