Sauðkrækingar stefna á að vera með því sem næst sama lið á næstu leiktíð og það sem komst í oddaleik gegn Val um Íslandsmeistaratitilinn nú í maí.
Í gær skrifuðu þeir Pétur Rúnar Birgisson, Sigurður Gunnar Þorsteinsson og Sigtryggur Arnar Björnsson allir undir nýja samninga við Tindastól. Samningur Péturs gildir til þriggja ára en Sigurður og Arnar sömdu til tveggja ára.

Þá hafði þjálfarinn Baldur Þór Ragnarsson þegar skrifað undir samning til eins árs, samkvæmt frétt á Feykir.is.

Strax eftir lokaleik tímabilsins sagðist Baldur vera samningslaus en að svo gæti vel farið að hann yrði áfram með Tindastól eins og nú er orðin raunin.