Viðbrögð lögreglunnar í Uvalde við skotárásinni í síðasta mánuði hafa sætt harðri gagnrýni og hafa bæði ríkis- og alríkisyfirvöld þau til rannsóknar.
Lögreglumenn biðu frammi á gangi á meðan byssumaðurinn var læstur inni í skólastofu með nemendum í klukkustund áður en sérsveit landamæravarða fékk lykil frá húsverði og felldi morðingjann. Frá Columbine-harmleiknum fyrir meira en tuttugu árum hefur lögreglu verið ráðlagt að mæta byssumanni sem fyrst til þess að koma í veg fyrir að þeir drepi fleiri og til að hægt sé að koma særðum til aðstoðar.
Í tilfinningaríku viðtali við ABC-sjónvarpsstöðina úthúðaði Arnulfo Reyes, sem varð fyrir tveimur byssukúlum í árasinni, lögreglunni fyrir athafnaleysið.
„Þið voruð í skotheldum vestum. Ég hafði ekkert. Ég hafði ekkert!“ sagði Reyes grátandi. Ekkert gæti afsakað viðbrögð lögreglunnar.
Öll ellefu börnin sem voru í skólastofunni með Reyes létust.
EXCLUSIVE: Arnulfo Reyes, teacher wounded in Uvalde shooting, to @arobach: I will not let these children and my coworkers die in vain. I will not. I will go to the end of the world to not let my students die in vain. https://t.co/QVFp3mciRo pic.twitter.com/ZkcioTBQ7W
— ABC News (@ABC) June 7, 2022
Barn kallaði á lögreglu en var skotið
Reyes lýsti því hvernig hann var einn með hluta bekkjarins eftir verðlaunahátíð fyrr um daginn. Skyndilega hófst skothríð og Reyes skipaði nemendunum að skríða undir borðin sín og látast sofa. Þegar hann smalaði börnunum þangað varð honum litið við og sá byssumanninn. Hann varð fyrir tveimur byssukúlum. Önnur þeirra hæfði handlegg hans og lunga en hin bakið.
Þegar kennarinn féll í gólfið ákvað hann að þykjast líka vera sofandi. Bað hann bænir og vonaðist til þess að nemendurnir þegðu. Hann heyrði nemanda í annarri skólastofu kalla á lögreglumann. Byssumaðurinn hafi þá staðið upp og skotið aftur.
Byssukúlum hafi svo rignt þegar landamæraverðir réðust loks inn í skólastofuna þar sem byssumaðurinn var.
„Þeir eru raggeitur. Þeir sátu þarna og gerðu ekkert fyrir samfélagið okkar. Þeir tóku langan tíma í að ráðast inn. Ég mun aldrei fyrirgefa þeim,“ sagði Reyes.
Komið hefur fram að á meðan lögreglumenn biðu fram á gangi hafi börn inni í skólastofunum reynt í örvæntingu hringt í neyðarlínu til að biðja um hjálp. Yfirmaður aðgerðarinnar á vettvangi hafi ekki vitað af þeim símtölum og talið að ekki væri lengur virk hætta af byssumanninum. Lögreglustjórinn hefur ekki tjáð sig um atburðina.