KA-menn fá danskan sálfræðing Sindri Sverrisson skrifar 23. júní 2022 17:00 Thomas Danielsen kynntist Hallgrími Jónassyni, spilandi aðstoðarþjálfara KA, í Danmörku þar sem Hallgrímur lék sem atvinnumaður. mynd/tdanielsen.dk Knattspyrnudeild KA hefur ráðið danska íþróttasálfræðinginn Thomas Danielsen til starfa og mun hann koma inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla auk þess að vinna þróunaráætlun fyrir yngri flokka félagsins. „
Thomas er gríðarlega fær afrekssálfræðingur sem mun án nokkurs vafa lyfta starfi okkar upp á enn hærra plan,“ segir á vef KA um ráðningu Danans sem Hallgrímur Jónasson, spilandi aðstoðarþjálfari KA, kynntist hjá SönderjyskE í Danmörku. Danielsen hefur unnið með fjölda afreksíþróttafólks og þar á meðal eru ólympíufarar, atvinnukylfingar, landsliðsmenn í fótbolta og handbolta, og verðlaunahafar í frjálsum íþróttum, að því er fram kemur á heimasíðu fyrirtækis hans. Þar auglýsir hann eftir viðskiptavinum sem vilja til dæmis hjálp til að vinna sinn fyrsta titil, auka leiðtogahæfni sína eða einfaldlega fá meiri gleði í sitt líf. Danielsen kom í fyrra til Akureyrar og flutti þar fyrirlestra fyrir þjálfara, leikmenn og foreldra hjá KA, og heillaði viðstadda eins og ráðningin sýnir. Eftir algjöra draumabyrjun í Bestu deildinni í sumar hafa KA-menn nú leikið fjóra leiki í röð án sigurs og sitja í 5. sæti með 17 stig, tíu stigum á eftir toppliði Breiðabliks. Næsti leikur KA er á hinum nýja KA-velli gegn Val á mánudagskvöld klukkan 18.
Besta deild karla KA Mest lesið Eygló verður síðasti Evrópumeistarinn í sögunni Sport Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Fótbolti Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Fótbolti Gummi Ben fór hamförum yfir endurkomu United Fótbolti Brynjar Karl tekur slaginn og segist ætla að bjóða sig fram sem forseta ÍSÍ Körfubolti Kraftanna óskað á öðrum vígstöðvum Handbolti Fjögurra ára strákur gerði allt brjálað í höllinni Sport Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu Fótbolti Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Fótbolti Leikhús draumanna stóð undir nafni í ótrúlegustu endurkomu síðari ára Fótbolti Fleiri fréttir Bestu Mörkin: „Kannski ekki fallegasta markið“ Meiddur Ramsey stýrir Cardiff út tímabilið Guardiola segir Meistaradeildarsæti vera nóg McTominay hetja Napoli Fram og Þór Ak. áfram í bikarnum HK vann Lengjudeildarslaginn og fór áfram í bikarnum Dýrlingarnir nældu í stig og jöfnuðu slakasta árangur sögunnar Stórsigur Villa galopnar baráttuna um Meistaradeildarsæti City nálgast sæti í Meistaradeild Evrópu Tveir fimmtán ára með þrjú fyrir KR | Adam Ægir skoraði strax fyrir Val Blésu til veislu eftir brostna drauma í Mílanó Cecilía að landa silfri og Fanney mætt í markið Sjáðu Ísak fara á kostum í Svíþjóð í dag Arsenal í erfiðri stöðu eftir haítískt sigurmark Mögnuð endurkoma mikilvæg í toppbaráttunni Ísak bombaði inn úr þröngu færi Kunnu ekki reglurnar og komust að því í beinni útsendingu „Varst þú ekkert í bláu spurningunum?“ Landsliðsmaður lést í fjögurra bíla árekstri Um afhroð Stjörnunnar í Kópavogi: „Ég spáði þessu jafntefli“ Heimsmeistarinn fyrrverandi þarf ný hné til þess að geta gengið eðlilega Stórt skref en KSÍ í kapphlaupi við tímann Albert sagður á óskalista Everton og Inter Leeds og Burnley skrefi nær ensku úrvalsdeildinni Sara Björk skoraði tvö í stórsigri Stjarnan og Vestri áfram eftir fjölda marka og mikla dramatík Breiðablik ekki í vandræðum og mögnuð endurkoma Þróttar James missir af mikilvægum leikjum meðan Chelsea eltir fernuna „Því miður verðið þið að þola mig aðeins lengur“ Skagamenn og Selfyssingar í sextán liða úrslit Sjá meira