Sex íhaldssamir dómarar Hæstaréttar sneru við tæplega hálfrar aldar gömlu fordæmi sem kennt er við Roe gegn Wade um að konu hafi stjórnarskrábundinn rétt til þungunarrofs þegar þeir leyfðu lögum frá Mississippi um bann eftir fimmtándu viku meðgöngu að standa. Afar fátítt er að dómafordæmi sé snúið við.
Fjöldi ríkja þar sem repúblikanar eru við völd voru undir þennan dag búinn. Þar eru í gildi lög sem kveða á um bann eða takmarkanir við þungunarrofi sem virkjuðust um leið og Hæstirétturinn kvað upp dóm sinn.
Heilsugæslusamtökin Planned Parenthood telja að 36 milljónir kvenna á barnseignaaldri missi aðgang að þungunarrofi í heimaríkjum sínum eftir dóminn, að því er segir í frétt breska ríkisútvarpsins BBC.
Slík lög hafa þegar verið vikjuð í Kentucky, Lúisíana, Arkansas, Suður-Dakóta, Missouri, Oklahoma og Alabama. Í Mississippi og Norður-Dakóta þarf dómsmálaráðherran að samþykkja gildistöku laganna. Í Idaho, Tennessee og Texas taka lögin gildi eftir þrjátíu daga en í Wyoming eftir fimm daga. Í Utah þarf þingnefnd að samþykkja bannið.
Frjálslyndari ríki eins og Kalifornía, Washington og Oregon hafa þegar gefið það út að þau muni veita konum sem leita þangað í þungunarrof vernd. Joe Biden forseti sagðist í gær ætla að tryggja að ríki sem banna þungunarrof gætu ekki komið í veg fyrir að konur sæktu sér meðferðina í ríkjum þar sem það er löglegt.
Ákvörðunni var mótmælt víða í gær og búist er við því að mótmælin haldi áfram í dag.
President Joe Biden said the U.S. Supreme Court decision to overturn the constitutional right to abortion was a sad day that will deny women in America control of their own destiny https://t.co/Z5gMGntJEG pic.twitter.com/2Uow0cYQW7
— Reuters (@Reuters) June 25, 2022
Hróp gerð að skjólstæðingum heilsugæslustöðvar
Dyrum heilsugæslustöðvar sem gerði þungunarrof í Little Rock í Arkansas var læst um leið og dómur hæstaréttar var birtur á netinu í gær. Hringt var í konur til að láta þær vita að tímabókunum þeirra hefði verið aflýst.
„Að þurfa að hringja í sjúklinga og segja þeim að Roe gegn Wade hefði verið snúið við var átakanlegt,“ sagði Ashli Hunt, hjúkrunarfræðingur við stöðina, við BBC.
Andstæðingar þungunarrofs fögnuðu fyrir utan heilsugæslustöðina og gerðu hróp að fólki sem lagði bílum sínum fyrir utan og hafði ekki heyrt tíðindin.
„Ég legg til að þið snúið við og yfirgefið þetta syndabæli, þennan stað óréttlætis, þennan illa stað,“ hrópaði mótmælandi á skjólstæðinga stöðvarinnar.
Í New Orleans í Lúisíana var einni af þremur heilsugæslustöðvum ríkisins sem gera þungunarrof strax lokað í gær. Lind Kocher, sjálfboðaliði sem fylgir konum í gegnum þvögu mótmælenda þar, sagði BBC að ríkar konur ætti enn eftir að geta farið í þungunarrof í öðrum ríkjum en þær fátæku sætu eftir í súpunni og neyddust til að leita uppi ólöglegt þungunarrof í skúmaskotum líkt og fyrir tíma Roe gegn Wade.
Síðustu heilsugæslustöðinni sem gerði þungunarrof í Jackson í Mississippi verður lokað á næstu dögum. Mikill atgangur mótmælenda þungunarrofs var þar fyrir utan í gær. Eigandi og forstöðumaður Pink House-stöðvarinnar staðfesti að hún yrði opnuð að nýju í Las Cruces í Nýju-Mexíkó.
Stöðin verður ein sú næsta fyrir konur í Mississippi eftir að þungunarrof verður bannað þar, að sögn Reuters-fréttastofunnar. Til þess að komast þangað þarf þó að keyra í gegnum tvö ríki, þar á meðal Texas sem er eitt víðfeðmasta ríki Bandaríkjanna.