Guðmundur í harðri baráttu um sæti á The Open Sindri Sverrisson skrifar 28. júní 2022 14:29 Guðmundur Ágúst Kristjánsson og Haraldur Franklín Magnús freista þess að komast inn á The Open. [email protected] Nú stendur yfir lokaúrtökumótið fyrir The Open, opna breska mótið í golfi, og freista tveir Íslendingar þess að komast inn á þetta virta risamót.
Haraldur Franklín Magnús varð fyrstur íslenskra karla til að komast inn á The Open þegar hann lenti í öðru sæti á úrtökumóti árið 2018. Það þarf hins vegar allt að ganga upp hjá honum á lokakaflanum í ár til að hann eigi raunhæfa möguleika á að komast áfram. Guðmundur Ágúst Kristjánsson er hins vegar í betri stöðu nú þegar verið er að spila seinni hringinn af tveimur. Lokaúrtökumótið fer fram á fjórum völlum samtímis og komast efstu fjórir á hverjum velli áfram á The Open sem fram fer um miðjan júlí. Guðmundur og Haraldur keppa á mótinu á The Prince's vellinum á Englandi. Guðmundur var, þegar þetta er skrifað, að fá örn á áttundu holu og vinna sig upp í 3. sæti en hann er þó jafn sjö öðrum kylfingum þar. Þeir eru samtals á -2 höggum hver en Guðmundur lék fyrri hring mótsins á pari. Gangi vel hjá honum síðustu tíu holurnar á Guðmundur mjög raunhæfa möguleika á að spila á St. Andrews vellinum þegar The Open fer þar fram. Haraldur er samtals á +1 höggi og er í 19. sæti þegar hann á níu holur eftir. Alls eru 288 kylfingar á völlunum fjórum að keppa um sætin sextán sem í boði eru. Gripið er til bráðabana ef þess þarf til að skera úr um það hverjir enda í fjórum efstu sætunum á hverjum velli.
Golf Opna breska Mest lesið Denver reka þjálfarann korter í úrslitakeppni Körfubolti Afturelding mætir Val í undanúrslitum Handbolti „Meiri barátta í okkur í dag heldur en í hinum leikjunum“ Körfubolti „Erum á uppleið og ætlum að halda áfram“ Körfubolti Skytturnar skutu Evrópumeistarana í kaf Fótbolti Elísabet stýrði Belgíu til sigurs á Englandi Fótbolti Íslendingalið Birmingham upp í B-deild Enski boltinn Landsliðskonum borist skilaboð og sagðar styðja Ísrael Handbolti Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti Sjáðu þrennu Karólínu Leu Fótbolti Fleiri fréttir „Ég get algjörlega unnið Masters-mótið“ Skítaveður og æfingum frestað á Augusta Vann fyrsta mótið eftir að hafa losnað úr fangelsi „Hugsaði að þetta myndi fá mig til að halda kjafti“ Tiger hringdi í Trump til að segja honum frá sambandinu McIlroy meiddur í aðdraganda Masters McIlroy annar til að þéna hundrað milljónir á PGA-mótaröðinni Gunnlaugur Árni í hóp fjörutíu bestu í heimi Tiger og Trump staðfesta sambandið Gunnlaugur Árni fagnaði og fer í hóp fimmtíu bestu McIlroy vann einvígið en Spaun fór í vatnið Players endar í einvígi: „Halda allir að hann vinni“ Spaun með naumt forskot á Players en McIlroy á enn möguleika Justin Thomas jafnaði vallarmetið á öðrum degi Players Gjammandi áhorfandinn biður McIlroy afsökunar McIlroy tók síma af gjammandi áhorfanda Tiger Woods sleit hásin Tiger syrgir móður sína og sleppir Players Enn að jafna sig á fráfalli móður sinnar og óviss hvort hann keppir á Players Ryder Cup snýr aftur á Stöð 2 Sport Var í mótorhjólagengi, sat inni en er nú kominn á Opna breska Sjá meira
Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti
Uppgjörið: Ísland - Sviss 3-3 | Þrenna Karólínu Leu skilaði stigi en sigurmarkið stóð á sér Fótbolti