Sjónvarpsþátturinn Sesamstræti deildi myndbandi á Twitter á þriðjudag sem sýnir brúðuna Elmo spjalla við föður sinn eftir að hafa fengið bólusetningu við Covid-19. Í myndbandinu segist Elmo hafa fundið fyrir smá klípu en að það hafi verið allt í lagi.
Þá segir Louie, pabbi Elmo, í myndbandinu að hann hafi lært að besta leiðin til að halda Elmo, vinum þeirra, nágrönnum og öllum öðrum heilbrigðum og gera þeim kleift að njóta hlutanna sem þau elska væri að Elmo fengi bólusetningu við Covid-19.
Segir brúðurnar bera út áróður
Í kjölfarið deildi Cruz færslu Sesamstrætis á Twitter og þakkaði þættinum fyrir að sýna foreldra sem spyrja spurninga um bólusetningar. Þá sagði hann Elmo mæla harkalega fyrir bólusetningum barna undir 5 ára aldri í myndbandinu án nokkurra vísindalegra gagna.
Thanks, @sesamestreet for saying parents are allowed to have questions!
— Ted Cruz (@tedcruz) June 28, 2022
You then have @elmo aggressively advocate for vaccinating children UNDER 5.
But you cite ZERO scientific evidence for this. Learn more:https://t.co/Ss20TmFTSB https://t.co/tr67QyfRyC
Það eru minna en tvær vikur síðan CDC og FDA gáfu leyfi fyrir því að um 20 milljón bandarískra barna undir fimm ára aldri mættu fá bólusetningu við Covid-19.
Fyrirtækið sem stendur á bak við Sesamstræti greindu frá því að þau hefðu unnið að myndbandinu í samstarfi við CDC og samtök bandarískra barnalækna en þau hafa gert nokkur sambærileg myndbönd um Covid-19.
Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Cruz á í deilum við brúður Sesamstrætis. Eftir að brúðan Stóri fugl greindi frá því að hann hefði verið bólusettur við Covid-19 í færslu á Twitter í nóvember á síðasta ári. Ted Cruz kallaði færsluna ríkisáróður fyrir fimm ára.
Government propaganda for your 5 year old! https://t.co/lKUlomnpq1
— Ted Cruz (@tedcruz) November 6, 2021