Það voru Kadidiatou Diani og Griedge Mbock Bathy sem skoruðu mörk franska liðsins í þessum leik en Janice Cayman jafnaði metin fyrir Belga í leiknum.
Frakkar urðu fyrir áfalli í leiknum en Marie-Antoinette Katoto, framherji liðsins, fór meidd af velli en hún virtist hafa meiðst á hné.
Frakkland er á toppi riðilsins með fullt hús stiga og er líkt og Þýskaland og England búið að tryggja sér farseðilinn í útsláttakeppni mótsins.
Ísland er í öðru sæti riðilsins með tvö stig og Belgía og Ítalía hafa eitt stig hvort lið. Íslenska liðið mætir því franska í lokaumferð riðilsins á mánudaginn kemur en Belgía og Ítalía leiða saman hesta sína.