

Dagný Brynjarsdóttir, leikmaður West Ham United á Englandi, segir síðasta tímabil hafa verið sitt besta hjá félaginu. Gengi liðsins hafi hins vegar mátt vera betra en það endaði með því að þjálfari þess hafi verið látinn fara.
Breska ríkisstjórnin hefur ákveðið að veita 600 milljónum punda, jafnvirði yfir 100 milljarða króna, á næstu tveimur árum í að stelpur fái sömu tækifæri í skólaíþróttum og strákar.
Knattspyrnusamband Íslands styður sameiginlega umsókn Danmerkur, Finnlands, Noregs og Svíþjóðar um að halda EM kvenna eftir tvö ár.
Sara Björk Gunnarsdóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins, hefur ákveðið að hætta að spila með landsliðinu.
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, greiðir nú í fyrsta sinn umbunargreiðslu vegna þátttöku leikmanna félaga á Evrópumóti kvenna í fótbolta.
Ljósmyndarar og myndatökumenn Vísis voru á ferð og flugi árið 2022. Eldgos, óveður og stjórnmálin voru að sjálfsögðu meðal helstu myndefna en aðgerðir lögreglu og dómsmál komu einnig oft við sögu.
Fyrirliði Evrópumeistara Englands, Leah Williamson, óttaðist að missa af leikjum á Evrópumótinu sökum verkja vegna legslímuflakks, eða endómetríósu.
Starfsmenn Knattspyrnusambands Íslands, KSÍ, fá 200 þúsund króna launauppbót vegna álags í kringum Evrópumót kvenna í knattspyrnu í sumar. Var þetta samþykkt á stjórnarfundi sambandsins þann 8. desember síðastliðinn.
„Ef ég á að vera hreinskilin þá hélt ég að myndi aldrei aftur komast á þennan stað. Ég hélt ekki einu sinni að ég yrði í hópnum fyrir stórmót á nýjan leik, hvað þá að spila í úrslitaleik á Wembley gegn Þýskalandi,“ segir Evrópumeistarinn Mary Earps, markvörður enska landsliðsins og Manchester United.
Ákvörðun um hvar úrslitakeppni Evrópumóts kvenna í knattspyrnu verður spiluð árið 2025 verður ekki tekin á skipulögðum degi.
Alex Scott, fyrrum leikmaður Arsenal og enska landsliðsins, segist hafa óttast um líf sitt og gat ekki yfirgefið húsið sitt vegna rasista og nettrölla sem hótuðu að binda enda á líf hennar.
Þó að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir hafi notið þess að láta ljós sitt skína á EM í fótbolta í sumar þá var hún um leið hreinlega að pína sig áfram. Rútuferðir á milli staða voru henni sérstaklega erfiðar.
Eftir leik Íslands við Hvíta-Rússland í kvöld tekur við úrslitaleikur við Holland á þriðjudag, um sæti á HM kvenna í fótbolta. Óvissa ríkir um aðalmarkaskorara Hollands og einn besta leikmann heims, Vivianne Miedema.
Meira en tvöfalt fleiri áhorfendur fylgdust með Evrópumóti kvenna í fótbolta í sumar en síðast þegar mótið var haldið, sumarið 2017.
Glódís Perla Viggósdóttir segir það gott að hafa ekki þurft að bíða lengi frá EM eftir því að hitta aftur vinkonur sínar í íslenska landsliðinu í fótbolta. Framundan eru mikilvægir leikir í undankeppni HM og Glódís vonast eftir góðum stuðningi líkt og á EM.
María Þórisdóttir er í öngum sínum eftir valið á norska landsliðshópnum í fótbolta fyrir komandi leiki í undankeppni HM.
Enski framherjinn Ellen White gaf það út fyrr í dag að hún ætlar að leggja knattspyrnuskónna á hilluna og snúa sér að öðrum málum.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta varð fyrir miklu áfalli í aðdraganda leikjanna mikilvægu við Hvíta-Rússland og Holland þegar ljóst varð að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir, einn besti leikmaður liðsins á EM, yrði ekki með vegna meiðsla.
Það styttist í næsta landsliðsverkefni hjá íslenska kvennalandsliðinu í fótbolta en þær spila síðustu leikina í undankeppni HM í upphafi næsta mánaðar. Liðið er í góðri stöðu og ljóst að sigrar í báðum leikjunum tryggja liðinu sæti á HM í fyrsta skipti. Vísir fór á stúfana og ræddi við nokkra sérfræðinga um þeirra skoðun á Evrópumótinu sem fram fór í Englandi svona þegar rykið hefur sest og stöðu mála hjá landsliðinu fyrir komandi verkefni.
Íslendingarnir í Bayern München þekkja vel vígsluathöfnina sem allir leikmenn liðsins þurfa að ganga í gegnum. Þær hafa þó sjaldan séð aðra eins kyndingu eins og hjá hinni ensku Georgiu Stanway á dögunum.
Tveir af yngstu leikmönnum íslenska kvennalandsliðsins í fótbolta voru meðal þeirra sem stóðu sig best í sinni leikstöðu á nýloknu EM í Emglandi.
KNVB, knattspyrnusamband Hollands, tilkynnti í dag að sambandið hafði náð sameiginlegu samkomulagi við Mark Parsons, þjálfara liðsins, að hann láti tafarlaust af störfum.
Íslenska kvennalandsliðið í fótbolta er það 14. besta af öllum í heiminum samkvæmt nýjasta styrkleikalista FIFA.
Leikmenn nýkrýndra Evrópumeistara, Englands, hafa skrifað undir opið bréf til verðandi forsætisráðherra Bretlands þar sem skorað er á hann að veita öllum stúlkum í landinu tækifæri til þess að æfa og spila fótbolta í skólum sínum.
Endurkomu ársins í fótboltaheiminum á mögulega einn leikmaður Evrópumeistaraliðs Englands. Beth Mead átti einstakt mót og yfirgaf það hlaðin verðlaunum.
Miðar á fyrirhugaðan vináttuleik Evrópumeistara Englands og heimsmeistara Bandaríkjanna í nóvember seldust upp á innan við sólarhring. Miðar fóru í sölu í dag en heimasíða enska knattspyrnusambandsins höndlaði ekki álagið.
Sarinu Wiegman tókst það um Verslunarmannahelgina sem engum enskum landsliðsþjálfara hafði tekist í 56 ár. Hún gerði enskt landslið að meisturum.
Chloe Kelly tryggði enska landsliðinu Evrópumeistaratitilinn með sigurmarki í framlengingu en þessi 24 ára fótboltakonan máttu þola mikið mótlæti á síðasta ári.
Það voru aðeins fjögur lið í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta sem voru tilbúinn að taka við leikjum á EM kvenna í ár og hin sextán félögin fengu að heyra það frá Alex Scott eftir úrslitaleikinn.
Ensku landsliðkonurnar tryggðu þjóð sinni sögulegan sigur þegar England vann 2-1 sigur á Þýskalandi í úrslitaleik EM í fótbolta.